Back to results

Reykjavík University

Project management in venture capital endeavors

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknir hafa sýnt að fjárfestar í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum gegna veigamiklu hlutverki í þróun nýrra fyrirtækja. Þær hafa einnig sýnt að það virðist vera talsverður munur á hæfni fjárfesta, sem sést af endurteknum framúrskarandi árangri sumra umfram annarra. Þetta bendir til að sumir fjárfestar skapi virðisaukningu umfram einungis þann gjörning að útvega fyrirtækjunum fjármagn. Þrátt fyrir þessar vísbendingar skortir rannsóknir sem varpa ljósi á það hvernig fjárfestar stýra fjárfestingum sínum. Þessi ritgerð skoðar hvernig fjárfestar í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum stýra fjárfestingum sínum og gerir samanburð á aðferðum þeirra við aðferðir verkefnastjórnunar. Megin markmiðið er að skoða hvort fjárfestar líta á fjárfestingar sínar sem verkefni, hvort þeir stýra þeim sem slíkum, hvaða hæfniþætti þeir telja mikilvægasta til að hámarka árangur og hvaða verkefnastjórnunartækjum þeir beita. Rannsóknin var gerð með viðtölum við leiðandi fjárfesta á Íslandi og vefkönnun sem send var á erlenda nýsköpunar fjárfestingasjóði (e. venture capital fund). Helstu niðurstöður eru að um helmingur fjárfesta lítur á fjárfestingar sínar sem verkefni. Stjórnun verkefnanna virðist hins vegar vera nokkuð svipuð, verkefnin eru unnin í áföngum (e. rounds) með stefnu og markmið. Fjárhags-, tíma- og aðgerðaáætlun er gerð varðandi hvernig markmiðum skuli náð. Fjárfestar styðjast við margvísleg tæki og tól verkefnastjórnunar sem stuðla að auknum árangri. Á óvart kemur í hve miklu mæli fjárfestar segjast styðjast við tæki og tól og áhugavert er að þeir sem meiri reynslu hafa í faginu segjast frekar styðjast við þau en þeir sem minni reynslu hafa. Þessi niðurstaða grefur mögulega undan þeirri trú að velgengni í stjórnun sprota- og nýsköpunarfjárfestinga byggist fyrst og fremst á innsæi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Magnús Ágúst Skúlason 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 10

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16300
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16300

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Magnús Ágúst Skúlason 1981-. Project management in venture capital endeavors. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16300