Abstract
dc:description.abstractRannsóknir hafa sýnt að fjárfestar í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum gegna veigamiklu hlutverki í þróun nýrra fyrirtækja. Þær hafa einnig sýnt að það virðist vera talsverður munur á hæfni fjárfesta, sem sést af endurteknum framúrskarandi árangri sumra umfram annarra. Þetta bendir til að sumir fjárfestar skapi virðisaukningu umfram einungis þann gjörning að útvega fyrirtækjunum fjármagn. Þrátt fyrir þessar vísbendingar skortir rannsóknir sem varpa ljósi á það hvernig fjárfestar stýra fjárfestingum sínum. Þessi ritgerð skoðar hvernig fjárfestar í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum stýra fjárfestingum sínum og gerir samanburð á aðferðum þeirra við aðferðir verkefnastjórnunar. Megin markmiðið er að skoða hvort fjárfestar líta á fjárfestingar sínar sem verkefni, hvort þeir stýra þeim sem slíkum, hvaða hæfniþætti þeir telja mikilvægasta til að hámarka árangur og hvaða verkefnastjórnunartækjum þeir beita. Rannsóknin var gerð með viðtölum við leiðandi fjárfesta á Íslandi og vefkönnun sem send var á erlenda nýsköpunar fjárfestingasjóði (e. venture capital fund). Helstu niðurstöður eru að um helmingur fjárfesta lítur á fjárfestingar sínar sem verkefni. Stjórnun verkefnanna virðist hins vegar vera nokkuð svipuð, verkefnin eru unnin í áföngum (e. rounds) með stefnu og markmið. Fjárhags-, tíma- og aðgerðaáætlun er gerð varðandi hvernig markmiðum skuli náð. Fjárfestar styðjast við margvísleg tæki og tól verkefnastjórnunar sem stuðla að auknum árangri. Á óvart kemur í hve miklu mæli fjárfestar segjast styðjast við tæki og tól og áhugavert er að þeir sem meiri reynslu hafa í faginu segjast frekar styðjast við þau en þeir sem minni reynslu hafa. Þessi niðurstaða grefur mögulega undan þeirri trú að velgengni í stjórnun sprota- og nýsköpunarfjárfestinga byggist fyrst og fremst á innsæi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Magnús Ágúst Skúlason 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 10Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16300
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16300