Back to results

Reykjavík University

Gagnsemi stefnumótunar fyrir verkefnið Film in Iceland

Abstract

dc:description.abstract

Film in Iceland er verkefni á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem hýst er hjá Íslandsstofu. Það sér um að kynna Ísland fyrir erlendum kvikmyndaframleiðendum sem ákjósanlegan stað fyrir kvikmyndatökur ásamt því að kynna lög um 20% endurgreiðslu kostnaðar við þá vinnu. Vitað er að 1. júlí 2013 rennur samningur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins við Íslandsstofu út. Eins og staðan er í dag er á huldu hvort sá samningur verður endurnýjaður eða hvort verkefnið fái nýtt heimili. Þar sem Film in Iceland hefur haft á að skipa aðeins einum starfsmanni undanfarinn áratug hefur sá starfsmaður sankað að sér mikilli reynslu og myndað í gegnum árin mjög sterkt tengslanet sem er gríðarlega mikilvægt að glatist ekki ef verkefnið skiptir um heimili. En hvernig má tryggja að þekkingin og reynslan glatist ekki sem mögulega hefði í för með sér að sá vöxtur sem verið hefur í framleiðslu erlendra kvikmynda á Íslandi haldi ekki áfram að vera stöðugur? Það er okkar mat að með því að nota verkfærið stefnumótun á verkefnið Film in Iceland og með því að greina hlutverk verkefnastjórans í þeirri vinnu megi mögulega koma í veg fyrir það. Við komumst að þeirri niðurstöðu með því að vinna hluta stefnumótunarferilsins með verkefnastjóra Film in Iceland sem og með því að taka viðtöl við helstu aðila kvikmyndaiðnaðarins á Íslandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Aðalsteinn Haukur Sverrisson 1973-
  • Elmar Bergþórsson 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16287
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16287

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aðalsteinn Haukur Sverrisson 1973-; Elmar Bergþórsson 1979-. Gagnsemi stefnumótunar fyrir verkefnið Film in Iceland. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16287