Abstract
dc:description.abstractOffita er stærsta næringarfræðilega vandamál vestrænna ríkja nú til dags og sýnir það sig meðal annars á því að fleiri deyja af völdum offitu en vannæringu. Offita sem skilgreind er sem líkamsþyngdarstuðull ≥ 30 kg/m2 er afleiðing viðvarandi ójafnvægis á milli orkuinntöku og orkueyðslu. Afleiðingar offitu geta verið bæði líkamlegar og sálrænar. Líkamleg áhrif offitu geta verið allt frá viðvarandi verkjum í líkamanum sökum mikils álags á liði til alvarlegra sjúkdóma eins og hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýkis 2 og krabbameins. Offita getur haft alvarleg áhrif á meðgöngu og barneignir meðal annars valdið ófrjósemi og erfiðleikum við fæðingu. Sálræn áhrif offitu geta verið slæm félagsleg staða kvenna sem glíma við offitu ásamt því að tengsl hafa fundist á milli þunglyndis og offitu. Til eru ýmis úrræði fyrir þá sem glíma við offitu. Almennt séð fela úrræðin í sér breytt mataræði, aukna hreyfingu og atferlismeðferð sem snýst um heilbrigðari lífsmáta. Lyfjagjöf og aðgerðir, sem úrræði ættu aðeins að nota þegar aðrar aðferðir sem fela í sér breyttan lífsstíl ganga ekki sem skildi. Á Íslandi eru staðir sem bjóða upp á úrræði fyrir konur sem glýma við offitu og má þar nefna Reykjalund, Heilsustofnun NLFÍ, Heilsuborg og Dansrækt JSB.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þórdís Skaptadóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16261
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16261