Reykjavík University
Byggingargallar í nýbyggingum á Íslandi: könnun á tíðni og umfangi
Abstract
dc:description.abstractGalli/ar í nýbyggingu valda því að byggingin uppfyllir ekki þau gæði sem henni eru ætluð. Slíkt leiðir til aukins kostnaðar fyrir eiganda og veldur iðulega ýmis konar óþægindum en oft getur reynst erfitt að sækja rétt sinn til viðeigandi aðila til lagfæringar á göllum eða til skaðabóta vegna þeirra. Í ritgerðinni verður umfang byggingargalla í nýbyggingum á Íslandi frá 1998 – 2012 kannað. Skoðað verður hverjar helstu orsakir þeirra eru, í hvaða byggingarhlutum og húsagerð þeir helst verða, hvaða skaðabætur eru samþykktar eða dæmdar vegna þeirra og hversu mörgum árum eftir afhendingu þeir sjást. Rannsóknaraðferðin samanstendur af a) greiningu dómsmála sem höfðuð hafa verið vegna byggingargalla á áðurnefndu tímabili og b) upplýsinga frá vátryggingafélögum um tjón sem tilkynnt eru af völdum byggingarstjóra og löggildra hönnuða. Helstu niðurstöður eru að tilkynnt hefur verið um tjón sem byggingarstjóri eða löggildur hönnuður ber ábyrgð á í einu af hverjum þrettán íbúðarhúsum sem byggðar voru á áðurnefndu tímabili. Orsakir flestra byggingargalla eru ófagleg eða ófullnægjandi vinnubrögð eða frágangur þeirra sem framkvæma vinnuna en hlutfallslega eru hæstu skaðabætur dæmdar fyrir galla af völdum ófullkominnar eða rangrar hönnunar. Flestir byggingargallar urðu í eða áttu uppruna sinn að rekja til útveggja, gólfa, stiga eða svala og flestir gallar urðu í sérbýlishúsum. Áætluð heildarupphæð skaðabóta vegna tjóna og/eða galla fyrir umrætt tímabil voru 4,1 milljarðar króna. Flestir byggingargallar komu í ljós við afhendingu eða fljótlega eftir afhendingu. Til að reyna að fækka byggingargöllum þurfa aðilar í byggingariðnaði að bæta vinnubrögð sín og frágang en með aukinni menntun, fagþekkingu, reynslu og bættu eftirliti er hægt að stuðla að fækkun byggingargalla. Lagt er til að stofnaður verði gagnabanki sem mun halda utan um upplýsingar vegna byggingargalla í nýbyggingum með það að markmiði að þróa lausnir til að koma í veg fyrir þá. Byggingargallar eru sameiginlegur vandi sem allir þurfa að gera sér grein fyrir og taka saman á. Ekki eru aðeins miklir fjármunir í húfi heldur einnig ímynd alls byggingariðnaðar á Íslandi. Lykilorð: Gallar, íbúðarhús, nýbygging, skaðabætur, byggingariðnaður.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigurður Rúnar Birgisson 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16104
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16104