Back to results

Reykjavík University

Real options in corporate finance

Abstract

dc:description.abstract

Aðferð fyrirtækja að til að verðleggja tækifæri til fjárfestinga hefur breyst mikið á undanförnum árum. Með stöðugum breytingum á mörkuðum standa fyrirtæki oftar frammi fyrir áhættumiklum fjárfestingum með óútreiknanlegri útkomu. Þær aðferðir sem þekktastar eru í dag við verðlagningu fjárfestinga eru núvirðisaðferðin (e. Net present value) og bygging ákvörðunartrjáa (e. Decision tree analysis). Ókosturinn við núgildandi aðferðir er að þær eiga það til að vanmeta virði fjárfestinga þar sem þau taka ekki inn í myndina sveiganleikan sem getur falist í því að geta tekið fleiri ákvarðanir eftir að nánari upplýsingar líta dagsins ljós og þær breytingar sem geta orðið á fjárstreymi (e. Cash flow) út fjárfestingartímann. Aðferð sem byggir á verðleggingu valrétta (e. Options) á fjármálamörkuðum hefur verið þróuð til að takast á við galla fyrri aðferða. Hún felst í því að verðleggja fjárfestingar í heimi þar sem fjárfestar eru hlutlausir vegna þeirrar áhættu sem er á markaðnum. Raunvilnanir (e. Real options) geta með hjálp valrétta fangað virði þess að hafa þennan sveiganleika. Val um að fresta, hætta við eða jafnvel stækka við sig eru möguleikar sem raunvilnanir geta verðlagt fyrir fyrirtæki. Fjárfestirinn getur ákveðið síðar hvort hann vilji nýta sér þessar breytingar þegar meiri upplýsingar eru til taks um fjárfestinguna. Með því að nota valrétti til að verðleggja fjárfestingar geta fyrirtæki takmarkað það tap sem þau verða fyrir við að taka að sér áhættumikla fjárfestingu. Í þessari ritgerð er farið yfir þá galla sem núverandi aðferðir hafa við að verðleggja fjárfestingatækifæri. Raunvilnanir verða síðan kynntar sem annar og betri kostur til að verðleggja fjárfestinga, sérstaklega þeirra sem stjórnast af mikilli áhættu og óvissu fjárstreymi. Lykilorð: Núvirðisaðferð, Valréttir, Raunvilnanir, Óvissa, Sveigjanleiki.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ellen Bjarnadóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16101
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16101

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ellen Bjarnadóttir 1986-. Real options in corporate finance. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16101