Abstract
dc:description.abstractLífeyrissjóðir eru bæði mjög stórir fjárfestar á íslenska fjármálamarkaðinum og jafnvel í alþjóðlegum samanburði. Þeir bera ríkar skyldur til eigenda sinna og samfélagsins í heild. Það er því nauðsynlegt að allar reglur um fjárfestingar þeirra séu mjög skýrar og í samræmi við tilgang lífeyriskerfisins. Enginn vafi má vera í þessum efnum, einkum þegar kemur að því hvar lífeyrissjóðir geyma fé sitt en um það fjalla reglur um fjárfestingarheimildir þeirra. Eigendur eða sjóðfélagar eiga að geta treyst á að fá til baka það fé sem þeir eru skyldugir til að leggja í lífeyrissjóðina þegar tekjur þeirra minnka. Þeir verða að fá að treysta því að féð sé í öruggum höndum og að óþarft sé að hafa áhyggjur af stöðu sjóðsins á hverjum tíma. Margt bendir til þess að vafi leiki um skýrleika umræddra fjárfestingarheimilda, ekki síst hjá þeim sem best þekkja til. Höfundur setti fram rannsóknarspurninguna: „Hverjar eru fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða – eru þær nægilega skýrar?“ Til að svara umræddri rannsóknarspurningu fór höfundur ítarlega í gegnum reglur um fjárfestingarheimildir lífeyrissjóðanna eins og þær eru í dag, þróun þeirra í gegnum árin og útgefið efni því tengt. Þá skoðaði höfundur löggjöf sem heimildirnar byggja á, fjármálaumhverfið á Íslandi og fjárfestingar svokallaðra þjóðarsjóða. Tilgangurinn með rannsókn þessari var að glöggva sig á þessum heimildum og skoða hvort allt væri með felldu en mikil umræða hefur átt sér stað um hlutverk og skyldur lífeyrissjóða fyrir þjóðina. Miklar breytingar hafa átt sér stað í fjármálaheiminum frá því lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, tóku gildi þann 1. júlí 1998 og þótti höfundi forvitnilegt að kanna hvort fjárfestingarheimildirnar haldist enn í hendur við laga- og fjármálaumhverfi eins og það hefur þróast. Helstu niðurstöður eru þær að fjárfestingarheimildirnar eru orðnar flóknar og óskýrar og að tími er kominn á heildarendurskoðun þeirra. Í því sambandi er mikilvægt að hafa skýrleika ofarlega í huga sem og megintilgang þess að byggja upp og viðhalda öflugu lífeyriskerfi. Jafnframt bæri að líta til stærðar og einkenna lífeyrissjóða sem stórra fjárfesta á innlendum fjármálamarkaði. Í því skyni er nauðsynlegt að líta frekar út fyrir landssteinana varðandi fjárfestingar og taka tillit til breytts fjármála- og lagaumhverfis.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Unnur Bachmann 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15972
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15972