Back to results

Reykjavík University

Upptaka reglna um nýtt eftirlitskerfi með fjármálamörkuðum inn í EES-samninginn

Abstract

dc:description.abstract

Árið 2010 samþykktu Evrópuþingið og Ráðherraráðið löggjöf um nýtt eftirlitskerfi með fjármálamörkuðum í Evrópu, en um samevrópskt eftirlitskerfi er að ræða. Umrætt eftirlitskerfi er byggt á reglugerðum sem lúta að stofnun Kerfisáhætturáðs og þriggja nýrra eftirlitsstofnana á sviði bankamála, verðbréfamála og vátryggingar- og starfstengdra lífeyrismála. Einna helst verður það reglugerð ESB nr. 1093/2010 um stofnun Evrópsks bankaeftirlits sem verður til umfjöllunar en líkt og titill ritgerðinnar gefur til kynna er það meginmarkmið hennar að rannsaka hvaða leiðir séu bærar fyrir Ísland og hin EFTA-ríkin að taka umræddar gerðir upp í EES-samninginn án þess að því tveggja stoða kerfi sem hann grundvallast á sé raskað. Í raun má segja að tvenns konar vandamál séu fyrir hendi þegar kemur að fyrrgreindum reglugerðum. Annars vegar er um að ræða álitaefni sem varða upptöku gerðanna í EES-samninginn, en ákvæði þeirra fara beinlínis á skjön við tveggja stoða kerfi samningsins, þar sem annarri stoðinni, ESB-stoðinni, eru veittar valdheimildir til þess að taka einhliða ákvarðanir sem eru bindandi fyrir hina stoðina, EES-stoðina, án þess að hægt sé að endurskoða slíkar ákvarðanir á sameiginlegum vettvangi. Hins vegar eru það síðan stjórnskipuleg álitaefni sem vakna þegar kemur að því að innleiða reglugerðirnar í landsrétt eftir að þær hafa verið teknar upp í EES-samninginn, en þær munu að öllum líkindum fela í sér umtalsvert framsal á ríkisvaldi til stofnana EFTA ef EES-aðlögun þeirra verður þannig úr garði gerð að þær valdheimildir sem eftirlitsstofnununum eru fengnar í reglugerðunum, verði framseldar til stofnana EFTA. Leitast verður við finna tillögur að lausn á þessum vandamálum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sunna Elvira Þorkelsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15970
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15970

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sunna Elvira Þorkelsdóttir 1987-. Upptaka reglna um nýtt eftirlitskerfi með fjármálamörkuðum inn í EES-samninginn. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15970