Back to results

Reykjavík University

Samkeppnisviðræður

Abstract

dc:description.abstract

Útboðstilskipun Evrópusambandsins 2004/18/EB færði kaupendum í Evrópu nýtt innkaupaferli, samkeppnisviðræður, sem hafði í för með sér meiri sveigjanleika en áður hafði þekkst, með tilheyrandi heimild til viðræðna við þátttakendur. Tilskipunin hefur þó jafnframt haft í för með sér ágreining um inntak og umfang heimilda og hefur túlkun ákvæðanna verið mismunandi eftir ríkjum og tekið mið af gildum þeirra og réttarkerfum auk venja í hverju ríki. Í desember 2011 voru lagðar fram tillögur að endurbótum ákvæðanna af hálfu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem taka að hluta á þeim óskýrleika sem eldri tilskipun hafði í för með sér. Víða hafa verið gefnar út leiðbeiningar af hálfu opinberra aðila og annarra sérfræðinga til að skýra álitaefni og leggja grunn að viðurkenndri framkvæmd, sem ekki er tekið á í lögum. Hér á landi hefur notkun samkeppnisviðræðna verið afar takmörkuð. Þar sem sömu reglur gilda hérlendis og annars staðar í Evrópu eru líkur á að sömu ágreiningsefni komi upp hér á landi og því megi læra af reynslu annarra ríkja. Í ritgerð þessari er leitast við að greina hin fjölmörgu álitaefni, skoða reynslu annarra þjóða, viðbrögð þeirra við óskýrleika tilskipunarinnar og meta hvaða aðgerðir gætu komið að gagni hérlendis til að tryggja örugga og viðurkennda notkun samkeppnisviðræðna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Sigrún Harðardóttir 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15956
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15956

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Sigrún Harðardóttir 1969-. Samkeppnisviðræður. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15956