Back to results

Reykjavík University

Arðsemismat á fasteignafélaginu FAST1

Abstract

dc:description.abstract

Markmið verkefnisins er að kanna hvort það sé arðbært að fjárfesta í fasteignafélaginu FAST-1 slhf. Félagið var formlega stofnað í maí 2012 af umsjónaraðilum félagsins, VÍB, eignastýringaþjónustu Íslandsbanka og ráðgjafafyrirtækisins Contra auk fjárfesta sem komu að verkefninu. Farið er í grunngreiningu á rekstri félagsins og lagt í umfangsmikla arðsemisútreikninga. Áætlað var sjóðstreymi fjármagns og fundið hreint núvirði rekstrarins auk þess sem helstu arðsemisniðurstöður voru skoðaðar. Þá var notast við Monte Carlo hermun til að kanna líkindadreifingu í niðurstöðum arðsemislíkansins við breytingu helstu óvissuþátta þess. Niðurstöður arðsemismatsins sýna fram á það að hreint núvirði er jákvætt sem segir okkur að fjárfestingin sé arðbær. Niðurstöður Monte Carlo hermunar sýna fram á að tæplega 53% líkur séu á því að hreint núvirði verði jákvætt. Niðurstöðurnar eru þó ekki ótvíræðar. Niðurstöður hermunar sýna að smávægilegar breytingar á lykilstærðum leiða til þess að hreint núvirði verði neikvætt. Þetta undirstrikast í niðurstöðum úr næmnigreiningu á arðsemislíkani. Þá sést það jafnframt að rekstrarform félagsins er hagstæðara fyrir ákveðna fjárfesta en aðra, nánar tiltekið lífeyrissjóði sökum skattahagkvæmis. Lokaniðurstaðan er því sú að fjárfesting í félaginu er líklegri en ekki til að verða arðbær en hafa verður í huga að smávægilegar breytingar á aðstæðum geta breytt þeirri niðurstöðu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Gísli Halldórsson 1990-
  • Hörður Pétursson 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14156
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14156

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gísli Halldórsson 1990-; Hörður Pétursson 1989-. Arðsemismat á fasteignafélaginu FAST1. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14156