Back to results

Reykjavík University

Áhrif ávaxtasykurs á líkamann og tengsl hans við offitu

Abstract

dc:description.abstract

Mikil aukning hefur orðið á yfirþyngd og offitu einstaklinga út um allan heim sem ýta undir fjölda sjúkdóma sem hægt væri að komast hjá með heilsusamlegri lífsstíl. Nokkuð líklegt þykir að einhver þáttur mataræðis eða lífsstíls séu áhrifavaldar frekar en erfðafræðilegir þættir. Hvaða þáttur það er sem hefur mestu áhrifin á þyngdaraukningu er enn nokkuð óljós. Hér á landi hefur neysla fitu minnkað og jákvæð breyting hefur orðið á hreyfimynstri einstaklinga en þrátt fyrir það fitnar fólk. Markmið þessarar ritgerðar er að kafa dýpra í áhrifaþætti sem undanfarin misseri hafa verið tengdir við og taldir vera ástæða yfirþyngdar og offitu með sérstaka áherslu á kolvetnið ávaxtasykur. Skoðuð verða áhrif ávaxtasykurs á líkamann, hann borinn saman við áhrif þrúgusykurs á líkamann og svo verður kafað ofan í nokkrar rannsóknir tengdar þessu viðfangsefni. Rannsóknirnar benda til þess að ávaxtasykurinn geti haft neikvæð áhrif á líkamann í miklu magni hvað varðar þyngd, fituframleiðslu, þvagsýrumyndun og mjög eðlislétt fituprótein svo dæmi séu tekin. Neysla ávaxtasykurs hér á landi virðist samkvæmt nýjustu tölum hafa staðið í stað undanfarin tíu ár en er þó í meira lagi hjá ýmsum aldurshópum, þá aðallega ungmennum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Tinna Þorsteinsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12527
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12527

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Tinna Þorsteinsdóttir 1988-. Áhrif ávaxtasykurs á líkamann og tengsl hans við offitu. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12527