Reykjavík University
Hlutdeild: mörkin á milli hlutdeildar, sbr. 22. gr. hgl., og samverknaðar, sbr. 2. mgr. 70. gr. hgl.
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er fjallað um hugtakið hlutdeild, sbr. 22. gr. hgl. Fjallað er um hvenær háttsemi telst til hlutdeildar og ítarlega greint frá inntaki hugtaksins. Hlutdeildarábyrgð getur komið til skoðunar þegar tveir eða fleiri fremja afbrot í sameiningu. Ef aðili er talinn til hlutdeildarmanns leiðir það yfirleitt til refsilækkunar. Samverknaður, sbr. 2. mgr. 70. gr. hgl., getur komið til skoðunar við svipaðar aðstæður en leiðir til refsiþyngingar. Vegna mismunandi áhrifa hlutdeildar og samverknaðar við ákvörðun refsingar er mikilvægt að greina hvenær háttsemi fellur undir hvort hugtakið fyrir sig. Í þeim tilgangi að greina á milli háttsemi sem telst til hlutdeildar annars vegar og samverknaðar hins vegar er litið til dóma Hæstaréttar í manndrápsmálum, málum tengdum stórfelldum fíkniefnainnflutningi og stórfelldri líkamsárás þar sem hlutdeild og samverknaður komu við sögu. Í þeim málum þar sem aðilar skipta með sér verkum eru mörkin á milli hlutdeildar og samverknaðar hvað óskýrust. Þá getur hvort sem er verið um að ræða hlutdeild eða verkskipta aðild og þar með samverknað. Þegar um verkskipta aðild er að ræða eru allir taldir bera refsiábyrgð á verknaðinum í heild þrátt fyrir að hafa aðeins komið að hluta hans. Verkskipt aðild kemur mikið við sögu í málum tengdum innflutningi á fíkniefnum og einnig í málum þar sem margir aðilar eiga þátt í stórfelldri líkamsárás. Algengara er að menn séu dæmdir sem samverkamenn í þeim málum heldur en hlutdeildarmenn þrátt fyrir að hafa einungis átt þátt í hluta brotsins. Í manndrápsmálum eru þátttakendur einnig taldir bera ábyrgð á verknaðinum í sameiningu nema að sannað sé hver aðilanna hafi raunverulega orðið valdur að dauða brotaþola.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Hrund Guðmundsd. Briem 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/12419
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/12419