Back to results

Reykjavík University

Sakarmat í skaðabótamálum

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um sakarmat í skaðabótamálum og er ritgerðarefnið að mestu einskorðað við mál sem varða líkamstjón. Tilgangur ritgerðarinnar er að rannsaka með hvaða hætti dómstólar beita svokölluðu ströngu sakarmati, á hvaða sviðum skaðabótaréttarins því sé beitt og hvort breyting hafi orðið á sakarmatinu síðustu áratugi. Fyrst er að finna inngangskafla þar sem efni ritgerðarinnar er kynnt. Í næsta kafla er gerð grein fyrir þeim grundvelli skaðabótakröfu sem tjónþoli getur byggt mál sitt á. Í þriðja kaflanum er umfjöllun um inntak strangrar beitingar sakarreglunnar og þau svið þar sem ströngu sakarmati er beitt. Þá er í fjórða kaflanum að finna umfjöllun um þróun sakarreglunnar og leitað svara við því hvort breyting hafi orðið á sakarmati í dómaframkvæmd. Að síðustu er lokakafli þar sem helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru dregnar saman. Til að komast til botns í rannsóknarefni ritgerðarinnar var fyrst og fremst stuðst við dóma Hæstaréttar og skrif fræðimanna á Norðurlöndum. Niðurstaða ritgerðarinnar er fjórþætt. Í fyrsta lagi er hún að ströngu sakarmati er beitt þannig að ríkari kröfur eru gerðar til skaðvaldsins með tilliti til huglægra og hlutlægra þátta og beitingu sönnunarreglna tjónþola í vil. Í annan stað er niðurstaðan sú að ströngu sakarmati er ekki einungis beitt þegar deilt er um skaðabótaábyrgð hinna „hefðbundnu“ sérfræðinga heldur einnig annarra, einkum þeirra sem búa yfir sérfróðri þekkingu af einhverjum toga. Í þriðja lagi er niðurstaðan sú að í vinnuslysamálum reynir í seinni tíð meira á skráðar hátternisreglur fremur en bonus pater mælikvarðann þegar sök er metin. Þó er ekki unnt að staðhæfa að sakarmatið sjálft sé strangara en fyrr. Að síðustu er það niðurstaða höfundar að sakarmat í málum sem varða umbúnað fasteigna sem tengjast atvinnurekstri sé strangara á síðari árum en áður var.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sveinbjörn Claessen 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12387
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12387

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sveinbjörn Claessen 1986-. Sakarmat í skaðabótamálum. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12387