Back to results

Reykjavík University

Lykillinn að forystu: Hver eru áhrif Dale Carnegie þjálfunar á þróun leiðtogahæfileika?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um grundvallaratriði forystu og hvernig þjálfa megi forystuhæfileika með þjálfunaraðferð Dale Carnegie. Rannsóknarhluti hennar er unninn í samstarfi við Dale Carnegie þjálfun á Íslandi. Ritgerðin skiptist í tvo hluta. Fyrri hluti hennar er fræðilegur og fjallar um hugtakið forystu og þau einkenni sem leiðtogi þarf að búa yfir. Farið verður yfir hvers konar þjálfunaraðferðir megi notast við þegar kemur að þjálfun leiðtoga en sérstök áhersla er lögð á Dale Carnegie þjálfun. Í lok fræðilega hlutans er gert grein fyrir þeim kenningum innan forystufræðanna sem tengja má að einhverju leyti við hugmyndafræði Dale Carnegie. Seinni hluti ritgerðarinnar samanstendur af rannsókn sem unnin var í samstarfi við Dale Carnegie þjálfun á Íslandi, niðurstöðum hennar og frekari umfjöllun. Settar voru fram tvær rannsóknarspurningar sem voru jafnframt tengdar viðfangsefninu og eru þær eftirfarandi: Hver eru áhrif Dale Carnegie þjálfunar að loknu námskeiði? Eiga einstaklingar auðveldara með að gegna hlutverki leiðtoga að loknu námskeiði? Til að leita svara við rannsóknarspurningunum var útbúinn spurningalisti sem sendur var með tölvupósti á fyrrum þátttakendur Dale Carnegie námskeiðs. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að Dale Carnegie þjálfun eflir þá eiginleika sem áhrifaríkur leiðtogi þarf að búa yfir. Meirihluti þátttakenda töldu sig hæfari til að gegna hlutverki leiðtoga að námskeiði loknu. Niðurstöður sýndu einnig að stærstur hluti þátttakenda töldu námskeiðið hafa verið góða fjárfestingu og voru mjög ánægðir með námskeiðið í heild. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar má ætla að hugmyndafræði Dale Carnegie sé gild og árangursrík aðferð til að þjálfa leiðtogahæfileika.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Edda Rós Skúladóttir Thorarensen 1987-
  • Írunn Viðarsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10733
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10733

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Edda Rós Skúladóttir Thorarensen 1987-; Írunn Viðarsdóttir 1988-. Lykillinn að forystu: Hver eru áhrif Dale Carnegie þjálfunar á þróun leiðtogahæfileika?. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10733