Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er fjallað um fjórar siðfræðikenningar eftir fræðimennina John Locke, Robert Nozick, John Stuart Mill og John Rawls í þeim tilgangi að leitast við að svara þeirri spurningu hvort stighækkandi tekjuskattur sé siðferðilega réttlætanlegur. Stighækkandi tekjuskattur er umdeildur skattur sem leggst misjafnlega á tekjur skattgreiðenda þannig að hærri tekjur eru skattlagðar hlutfallslega hærra en lægri tekjur. Umfjöllunin miðar að því að rannsaka framangreindar kenningar og draga af þeim ályktarnir um það hvort það sé siðferðilega réttlætanlegt að leggja á stighækkandi tekjuskatt í ljósi þeirrar mismununar sem felst í honum. Álykta má af kenningum Locke, Nozick og Mill að þeir myndu telja að stighækkandi tekjuskattur væri ekki siðferðilega réttlætanlegur. Rawls virðist einnig líta svo á að stighækkandi tekuskattur sé almennt ekki réttlátur, en hann myndi á hinn bóginn fallast á það að stighækkandi tekjuskattur geti verið siðferðilega réttlætanlegur ef komið yrði í veg fyrir meira óréttlæti með því að leggja hann á. Stighækkandi tekjuskattur var lagður á íslenska skattgreiðendur með lögum nr. 128/2009 um tekjuöflun ríkisins. Athugað verður hvort sá skattur sé siðferðilega réttlætanlegur með tillti til þeirrar niðurstöðu sem fékkst með greiningu á ofangreindum kenningum. Athugað verður hvert markmiðið var með skattinum og hvort það hafi verið nauðsynlegt að leggja hann á. Skoðað verður hvort hann standist þær kröfur sem Rawls gerir til stighækkandi tekjuskatts svo hann teljist siðferðilega réttlætanlegur. Niðurstaðan er sú að í samfélagslegu samhengi hér á landi og markmiðs laganna í ljósi samfélagslegs veruleika og markmiðs lagasetningarinnar sé hann ekki siðferðilega réttlætanlegur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sandra Lind Valsdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10708
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10708