Hólar University College
Influence of river proximity on water quality and its impact on Caribbean Mangrove Oyster populations : a case study in Bowden Bay, St. Thomas, Jamaica
Abstract
dc:description.abstractÞessi rannsókn kannaði hvernig fjarlægð frá opnu hafi og ólífrænir þættir höfðu áhrif á þéttleika og útlit skelja Crassostrea rhizophorae (CR) og Isognomon alatus (IA) í leiruviðaskógi við Bowden Bay, St. Thomas, Jamaíka. Niðurstöðurnar sýndu hærri þéttleika Crassostrea rhizophorae nær opnu hafi. Sú tegund var einnig í hærri þéttleika á rótum leiruviðartrjáa en Isognomon alatus þegar báðar tegundirnar fundust á rótunum. Hjá báðum tegundunum sást breytileiki í stofnstærð og útliti skelja á milli sýnatökustöðva, og virtist IA vera stærri á ákveðnum stöðvum. Þættir er tengjast gæðum sjávar, þar með talin selta, uppleyst súrefni og hitastig voru breytileg með tilliti til staðsetningar í ósnum og hafði það áhrif á stofna ostranna. Crassostrea rhizophorae valdi lítillega hærri seltu og styrk blaðgrænu a. Það sem takmarkar þessa rannsókn er hversu stutt rannsóknin varði og hversu lítið svæði var skoðað. Mikilvægt er því að skoða rannsóknaspurningarnar á stærra svæði, með víðtækari vöktun. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna mikilvæga þætti sem taka verður tillit til við ræktun á ostrum, endurheimt búsvæða og vernd náttúrunnar. Með því að skilja þessa umhverfis og búsvæðaþættir er hægt að þróa betri áherslur fyrir sjálfbæra ræktun á ostrum. Áframhaldandi rannsóknir ættu að skoða langtíma umhverfisbreytingar, erfðafjölbreytilika og hvernig þeir þættir hafa áhrif á ostrustofna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bennett, Leanne Morris, 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50941
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50941