Back to results

Hólar University College

Hughrif sem tónlistin vekur : tónlist og ferðaupplifun

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að skoða íslenska þjóðlaga- og alþýðutónlist sem tækifæri til að auðga upplifun erlendra ferðamanna á Íslandi. Til að greina tengsl sviðsetningar við einstaklingsbundna upplifun beini ég augum að hagkerfi upplifunar, sanngildi og upprunaleika. Ég skoða einnig einkenni íslenskrar þjóðlaga- og alþýðutónlistar og greini í gegnum viðtöl og orðræðu hvernig erlendir ferðamenn upplifa þessa sömu tónlist. Þar sem grunnurinn í rannsókninni er upplifun fólks styðst ég við eigindlega nálgun. Annars vegar notaði ég aðferðir fyrirbærafræðinnar (e. phenomenology) en í stuttu máli hverfist sú nálgun um persónulega reynslu einstaklinga og hópa. Hins vegar hafði ég til hliðsjónar nálgun kenninga um gerendanet (e. Actor Network Theory) og orðræðugreiningar (e. discourse analysis) en með þeim aðferðum má greina orðræðu og margræð net samskipta og tengsla milli ferðamanna og áfangastaðar. Við söfnun frumgagna lagði ég annars vegar spurningar fyrir ferðamenn á Íslandi og hins vegar tók ég hálfstöðluð viðtöl við nokkra mismunandi aðila sem tengjast íslenskri ferðaþjónustu. Greining á niðurstöðum spurninga og viðtala bendir til þess að íslensk tónlist getur verið markverð viðbót við ferðaupplifun erlendra ferðamanna hér á landi. Annars vegar getur tónlistin dýpkað upplifun þeirra á náttúru landsins og menningu og hins vegar, þegar fólk er búið að upplifa margt af því sem Ísland hefur upp á að bjóða, upplifir það sterkar tónlistina og tengir við hana á margslungnari hátt. Niðurstöður á rannsókn minni drógu einnig fram gagnverkandi áhrif upplifunar og framsetningar annars vegar og tengsl upplifunar og væntinga hins vegar. Rannsókn mín sýnir fram á að það að hlusta á íslenska tónlist á ferðalagi um Ísland er jákvæð reynsla í sjálfu sér og þar að auki hefur íslensk tónlist eitthvað sérstakt fram að færa sem gerir upplifun ferðamanna af landi og þjóð áhrifameiri.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Unnur Jensdóttir 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48670
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48670

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Unnur Jensdóttir 1964-. Hughrif sem tónlistin vekur : tónlist og ferðaupplifun. 2024. https://hdl.handle.net/1946/48670