Back to results

Hólar University College

Hvati og væntingar : hver er hvatinn og hverjar eru væntingar til fjallgöngu hjá íslensku fjallgöngufólki? : dæmi frá Vesturlandi

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna mun á hvata og væntingum ferðafjallgöngufólks víðar um heiminn og bera saman við væntingar fjallgöngufólks á Vesturlandi. Í rannsókninni er skoðaðar erlendar rannsóknir, þar sem hvatar og væntingar ferðamanna í fjallgöngum eru bornar saman við hvata og væntingar íslenska fjallgöngufólksins. Markmið rannsóknarinnar er að; sjá hvort að samræmi sé á milli íbúa og ferðafólks, þegar kemur að hvata og væntingum til fjallgöngu; sjá hvort að hægt sé að benda á ákveðna leið eða fjall á Vesturlandi sem er einna vinsælast; að sjá hvort hægt sé að skilgreina fjallgöngufólk á Vesturlandi. Til að finna ákveðnar tölur og samanburð var rýnt í fjölmargar rannsóknir sem hafa verið gerðar um gönguferðir og fjallgöngur og skoðaðar tölur um hvata og væntingar ferðafjallgöngufólks. Spurningakönnun var lögð fyrir fjallgöngufólk á Vesturlandi og svöruðu 172 þátttakendur könnuninni. Niðurstöður rannsóknarinnar draga það fram að hvati til fjallgöngu er sá sami hjá ferðafjallgöngufólki og fjallgöngufólki á Vesturlandi en það er náttúru upplifun. Helstu væntingar ferðafjallgöngufólks var að hverfa frá hversdagsleikanum, úr þeim mikla hraða sem er að finna í nútímalífi hvers og eins en væntingar þátttakenda á Vesturlandi voru að komast í tengingu við náttúruna. Náttúran var því sterkur hluti væntinga og hvata fjallgöngufólks á Vesturlandi. Úr frá erlendum og innlendum rannsóknum og þessari rannsókn má leiða að því líkum að fjallgöngufólk á Vesturlandi sé „mjúk ævintýra-fjallgöngufólk“ þar sem þau eru viðkvæm fyrir veðráttum og taka enga óþarfa áhættur. Hafnarfjall í Hvalfjarðarsveit var vinsælast fjall sem nefnt var í könnuninni og var jafnframt áhugavert hversu margar leiðir/mörg fjöll voru nefnd í könnuninni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafþór Ingi Gunnarsson 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44984
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44984

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafþór Ingi Gunnarsson 1981-. Hvati og væntingar : hver er hvatinn og hverjar eru væntingar til fjallgöngu hjá íslensku fjallgöngufólki? : dæmi frá Vesturlandi. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44984