Back to results

Hólar University College

Þjónustugæði og starfsmannaþörf - Eldfjallamiðstöð á tímamótum

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari skýrslu er fjallað um verknám höfundar sem lokaverkefni í námi við BA í stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta við Háskólann á Hólum. Verknámið fór fram á Lava – eldfjalla- og jarðskjálftamiðstöðinni á Hvolsvelli í mars og apríl 2023. Áhersla verknámsins snéri aðallega að því að kynnast því hvaða þjónustuviðmið eru sett í gestamóttöku miðstöðvarinnar og hvernig má ná þeim markmiðum sem sett eru með tilliti til starfsmannafjölda sem þarf til að ná þeim þjónustuviðmiðum. Höfundur sinnti daglegri rekstrarstjórn fyrirtækisins á meðan á verknáminu stóð og fékk því tækifæri til að fylgjast náið með ásamt því að taka viðtal við framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Á meðan á verknáminu stóð kom í ljós að áform eru hjá húseiganda um að bæta veitingastað og hóteli við reksturinn og reyndi höfundur að setja þau áform í samhengi við núverandi rekstur með það að markmiði að hægt yrði að ná fram sömu þjónustugæðum eða betri með tilkomu nýrra deilda. Ég tel að þetta lokaverkefni sé gagnlegt til að meta með hvaða hætti er hægt að samnýta gestamóttöku fyrir fjölbreyttan rekstur s.s. veitingadeildar, hótels og afþreyingar. Lykilorð: Þjónustugæði, þjónustuupplifun, ferðaþjónusta, þjónustustjórnun, þjónustuvæntingar

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnar Aron Ólason 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44983
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44983

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnar Aron Ólason 1975-. Þjónustugæði og starfsmannaþörf - Eldfjallamiðstöð á tímamótum. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44983