Back to results

Hólar University College

Mikilvægi virkra samskipta á vinnustað : upplifun starfsfólks í ferðaþjónustu

Abstract

dc:description.abstract

Samskipti eiga sér stöðugt stað á vinnustöðum og er mikilvægt að rétt sé staðið að samskiptaformum og túlkun samskipta. Samskipti á milli stjórnenda og starfsmanna geta verið formleg og óformleg, skrifleg og munnleg, og farið fram rafrænt og með líkamstjáningu. Með sífelldum vexti í ferðaþjónustunni hérlendis skapast mörg störf fyrir innlent og erlent vinnuafl og starfsmannavelta getur verið mikil innan greinarinnar. Með virkum og góðum samskiptum á vinnustað sem taka mið af aðstæðum hverju sinni skapast jákvætt og gott vinnuumhverfi og starfsánægja eykst. Þetta leiðir til ánægjulegrar upplifunar fyrir viðskiptavininn sem vill þá koma aftur og halda tryggð við fyrirtækið og þar með er kominn félagslegur og fjárhagslegur ávinningur fyrir fyrirtækið. Í þessari rannsókn var notast við eigindlega viðtalskönnun við starfsfólk sem starfar eða hefur starfað í ferðaþjónustu til að skoða hvernig upplifun þeirra hefur verið á vinnustað. Þá var sérstaklega verið að skoða hvort þátttakendur hefðu upplifað misbresti við stjórnendur og yfirmenn sína, og hvaða leiðir þeir nota til að gera samskiptin betri ef á þurfti. Niðurstöður sýndu fram á að flestir hefðu almennt átt góð samskipti við sína stjórnendur og væru meðvitaðir um hvaða aðgerðir þeir gætu tekið til að bæta samskiptin ef um misskilning væri að ræða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Edda Unnsteinsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44982
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44982

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Edda Unnsteinsdóttir 1983-. Mikilvægi virkra samskipta á vinnustað : upplifun starfsfólks í ferðaþjónustu. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44982