Back to results

Hólar University College

Umhverfisstjórnun á gististöðum og grænir stjórnunarhættir : viðhorf og skilningur stjórnenda

Abstract

dc:description.abstract

Vaxandi áhyggjur og kröfur neytenda vegna neikvæðra umhverfisþátta hafa orðið til þess að fyrirtæki hafa þurft að bregðast við til að koma á móts við þær áskoranir. Á heimsvísu virðast hótel og gistiðnaðurinn hafa náð þar nokkru forskoti og hafa þróað græna starfshætti til að draga úr óæskilegum áhrifum starfseminnar á umhverfið. Meginmarkmið rannsóknarinnar voru að kanna hvað það er sem stjórnendur finnst falla undir umhverfisstjórnun og hvernig þeir upplifa umhverfisvottanir og hvernig svokölluð græn stjórnun er framkvæmd hjá þeirra fyrirtæki. Þessi rannsókn er eigindleg rannsókn og tilgangur hennar var að kanna þekkingu og viðhorf stjórnenda á viðfangsefninu ásamt því að höfundur öðlist skilning á því hvernig þessu er háttað á hótel og gististöðum hérlendis. Rannsóknargögn voru fengin með viðtölum við fjóra viðmælendur sem allir hafa reynslu og þekkingu á einhverskonar umhverfisstjórnun hjá sínu fyrirtæki. Niðurstöðurnar sýna að hótel og gististaðir sem eru með umhverfisvottanir eru líklegri til að vera með skýrari og árangursríkari umhverfisstjórnun en þeir gististaðir sem eru ekki með vottanir. Það bendir þó margt til þess að grænir stjórnunarhættir (ekki með vottun) séu algengir á gististöðum og þykja sjálfsagðir en eru þó á mismunandi stigum hjá fyrirtækjum. Ennfremur benda niðurstöður til þess að hótel og gististaðir sem eru með umhverfistefnu virðast oftar en ekki vera með sterkari samkeppnishæfni á markaði fyrir vikið. Vöntun er á samþættingu og stuðningi og jafnvel fjármagni frá hinu opinbera og forsvarsmönnum ferðamála á Íslandi fyrir gististaði sem vilja taka upp grænni starfshætti. Lykilorð : Grænir stjórnunarhættir, umhverfisstjórnun, umhverfisvottun, umhverfisstefnur, grænir gististaðir

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erla Kristín Sverrisdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42724
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42724

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erla Kristín Sverrisdóttir 1979-. Umhverfisstjórnun á gististöðum og grænir stjórnunarhættir : viðhorf og skilningur stjórnenda. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42724