Back to results

Hólar University College

Mikilvægi stjórnunar í ferðaþjónustu á upplifun gesta : hafa stjórnunarhættir áhrif á frammistöðu starfsfólks í gestamóttöku og þar með á upplifun gesta?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari skýrslu er greint frá verknámi höfundar innan brautarinnar stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta við ferðamáladeild Háskólans á Hólum. Verknámið fór fram á þekktu hóteli á Suðurlandi, Hótel Geysi og var aðaláhersla verknámsins að kynnast stjórnunarháttum gestamóttökunnar. Var það gert bæði með því að standa vaktir í gestamóttökunni og sinna sérverkefnum. Á meðan á verknámi stóð mótaði ég rannsóknarspurningu þessarar skýrslu. Rannsóknarspurningin er; Hafa stjórnunarhættir áhrif á frammistöðu starfsfólks í gestamóttöku og þar með á upplifun gesta? Í skýrslunni er annars vegar greint frá tilhögun verknámsins, hins vegar er leitast við að svara því hvort stjórnunarhættir hafi áhrif á frammistöðu starfsfólks gestamóttöku og þar með á upplifun gesta. Í ljós kom að stjórnendur hafa vissulega áhrif á frammistöðu í gestamóttöku. Stjórnunarhættir og þar með stjórnendur gegna veigamiklu hlutverki þegar kemur að starfsánægju starfsfólks. Starfsmenn í móttöku gegna lykilhlutverki í upplifun gesta. Ef stjórnendur ýta undir starfsánægju starfsmanna getur það leitt til samkeppnisforskots og meiri velgengni hjá fyrirtækinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ása Valdís Árnadóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36313
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36313

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ása Valdís Árnadóttir 1982-. Mikilvægi stjórnunar í ferðaþjónustu á upplifun gesta : hafa stjórnunarhættir áhrif á frammistöðu starfsfólks í gestamóttöku og þar með á upplifun gesta?. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36313