Back to results

Hólar University College

Reykjanes jarðvangur : samfélagslegur ávinningur íbúa af Reykjanes jarðvangi

Abstract

dc:description.abstract

Náttúruferðamennska byggist á því að upplifa hið náttúrulega umhverfi og er aðalaðdráttarafl ferðamanna að tengjast náttúrunni. Ferðaþjónusta felst í meginatriðum í samblöndu upplifunar náttúru og varðvörslu hennar (Newsome, 2002). Ekki er nóg að náttúrufegurðin sé einstök heldur þarf að vera gott aðgengi og fagþekking þeirra sem að náttúruferðaþjónustu koma. Global UNESCO jarðvangar eiga það sameiginlegt að vera landfræðilegt svæði með jarðfræðilega mikilvægu landslagi þar sem sjálfbærri þróun, verndun og fræðslu er stýrt með heildstæðri stefnu. Íbúar Reykjaness jarðvangs voru viðfangsefni okkar í þessari ritgerð þar sem skoðað var hver sé samfélagslegur ávinningur þeirra á því að búa innan Reykjanes UNESCO jarðvangs ásamt því hvert sé viðhorf íbúa til ferðamála. Til þess að svara því var lögð fram spurningakönnun með hentugleikaúrtaki á veraldarvefnum fyrir íbúa Reykjaness og tekin stutt viðtöl við verkefnastjóra Reykjaness jarðvangs og verkefnastjóra ferðamála í Reykjanesbæ. Helstu niðurstöður voru þær að viðhorf þátttakenda í spurningakönnun íbúa Reykjaness innan UNESCO jarðvangs voru fremur jákvæð gagnvart ferðamönnum og uppbyggingu ferðamála á Reykjanesi en töldu mikla þörf á því að fá landverði. Samfélagslegur ávinningur íbúa Reykjaness UNESCO jarðvangs er m.a. í formi fræðslu, umhverfisvernd, sjálfbærri nýtingu auðlinda og afþreyingu á svæðinu. Lykilorð: íbúar, Reykjanes jarðvangur, samfélagslegur ávinningur, náttúruferðamennska, UNESCO

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Aldís Óskarsdóttir 1992-
  • Sonja Ósk Karlsdóttir 1965-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31332
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31332

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aldís Óskarsdóttir 1992-; Sonja Ósk Karlsdóttir 1965-. Reykjanes jarðvangur : samfélagslegur ávinningur íbúa af Reykjanes jarðvangi. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31332