Back to results

Hólar University College

Landsmót hestamanna 2014 : væntingar og upplifun innlendra og erlendra gesta

Abstract

dc:description.abstract

Þessi meistaraprófsritgerð byggir á rannsókn sem gerð var eftir Landsmót hestamanna á Hellu (Gaddstaðaflötum) árið 2014. Landsmót hestamanna er einn stærsti íþróttaviðburður sem haldinn er á Íslandi þau ár sem mótið er haldið og þá hefur hestatengd ferðamennska einnig vaxið með árunum. Gengið var út frá rannsóknarspurningum sem snéru að væntingum gesta og upplifun þeirra af því að sækja Landsmót heim. Notast var við megindlega aðferðarfræði. Spurningalisti var sendur til innlendra sem og erlendra gesta og gagna þannig aflað. Tilgangur rannsóknarinnar var að ná fram upplýsingum um ánægju gesta með skipulag og framkvæmd mótsins. Upplýsingarnar sem hér koma fram geta reynst dýrmætar fyrir framtíðarskipulag mótsins, sem og markaðssetningar á íslenska hestinum erlendis en fjöldi erlendra gesta sækir að jafnaði mótið heim. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að gestir eru í stórum dráttum ánægðir með grunnskipulag mótsins og vilja ekki miklar breytingar hvað það varðar. Staðarval Landsmóts og lengd mótsins eru helst þeir þættir sem gestir nefna að taka þurfi til endurskoðunar. Erlendir gestir nefna þó síður staðarval. Veður lék mótsgesti grátt á Landsmótinu á Hellu 2014 og því eru athugasemdir sem snúa að veðrinu einnig algengar. Í kjölfar rannsóknarinnar sem hér er kynnt var gerð rannsókn á Landsmóti hestamanna 2016 og byggir sú rannsókn að hluta á spurningalista þessarar rannsóknar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Lilja Pétursdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31330
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31330

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Lilja Pétursdóttir 1982-. Landsmót hestamanna 2014 : væntingar og upplifun innlendra og erlendra gesta. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31330