Back to results

Hólar University College

Afþreyingarferðaþjónusta á Íslandi : menntun stjórnenda og viðhorf þeirra til mikilvægis menntunar í greininni

Abstract

dc:description.abstract

Mikill vöxtur hefur verið í ferðaþjónustu síðustu ár og er ferðaþjónustan orðin ein af grunnatvinnugreinum Íslendinga. Fjöldi fyrirtækja sem bjóða upp á afþreyingu og þjónustu fyrir ferðamenn hefja rekstur á ári hverju. Fjölgun fagmenntaðra hefur ekki haldist í hendur við fjölgunferðamanna en menntun og þjálfun stjórnenda og starfsmanna er einn af lykilþáttum faglegrar uppbyggingar ferðaþjónustufyrirtækja. Markmið þessa verkefnis er að kanna menntunarstöðu stjórnenda í afþreyingarferðaþjónustufyrirtækjum á Íslandi og viðhorf þeirra til mikilvægis menntunar í greininni. Til þess að kanna þetta var send út spurningakönnun til stjórnenda í afþreyingarfyrirtækjum á Íslandi sem samanstendur af fjórtán spurningum auk þess sem stuðst var við eldri rannsóknir. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að flestir stjórnendur hafa lokið háskólaprófi eða 64%. Margir stjórnendur hafa iðnnám sem hæstu gráðu eða diplóma. Stjórnendur meta fyrri reynslu nýrra starfsmanna af störfum í faginu umfram menntun og sérþekking á borð við skyndihjálp, leiðsögumenntun, meirapróf og ýmis hagnýt námskeið vegur þyngra en háskólamenntun í ráðningarferli. Hvatinn til að efla þekkingu innan fyrirtækja í afþreyingarþjónustu er lítill en meiri fagmennska er forsenda þess að greinin njóti meiri virðingar í samfélaginu. Aðgangsþröskuldur að ferðaþjónustu er lágur og tiltölulega auðvelt er að stofna fyrirtæki í greininni og hefja rekstur eins og staðan er í dag. Til að gera ferðaþjónustu að aðlaðandi atvinnugrein fyrir metnaðarfullt vinnuafl þarf að auka kröfur til þeirra sem stofna og reka fyrirtæki í greininniog þar með styðja við jákvæða uppbyggingu til framtíðar. Lykilhugtök: afþreyingarfyrirtæki, menntunstjórnenda, menntun starfsmanna, starfsreynsla

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bryndís Fanný Halldórsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25062
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25062

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bryndís Fanný Halldórsdóttir 1986-. Afþreyingarferðaþjónusta á Íslandi : menntun stjórnenda og viðhorf þeirra til mikilvægis menntunar í greininni. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25062