Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er fjallað um matarviðburði, hver markmið og ávinningur þeirra er og hvaða þættir spila þar inn í. Matarviðburðir eru rannsakaðir út frá framboðshlið og þeir viðburðir sem teknir eru fyrir í þessari ritgerð hafa það sameiginlegt að standa skemur en einn sólarhring og eru allir staðsettir á landsbyggðinni. Matarviðburðir geta haft margbreytileg áhrif á umhverfið og samfélagið. Markmið verkefnisins er að skoða hvort markmiðin sem hagsmunaaðilar setja sér fyrir matarviðburðinn skili sér í raunverulegum ávinningi og hvort það sé samræmi á milli þeirra markmiða sem sett eru og hugsanlegs ávinnings. Til að geta greint það voru viðtöl tekin við hagsmunaaðila og fyrirliggjandi gögn skoðuð. Þrátt fyrir að markmiðasetning hafi ekki verið lík milli viðburða kom í ljós að ávinningur var af öllum viðburðum, þó mismikill væri. Niðurstöður sýndu þó að sterk markmiðasetning skilaði sér í góðum ávinningi. Lykilorð: Viðburður, matarviðburður, markmið, ávinningur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þórhildur M. Jónsdóttir 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15167
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15167