Abstract
dc:description.abstractMatarferðaþjónusta hefur verið skilgreind á fleiri en einn hátt og sjaldnast allir verið ánægðir með hverja skilgreiningu. Þegar kemur að matarferðaþjónustu er mikilvægt að skoða staðbundin og svæðisbundin matvæli en þegar ferðamenn velja staðbundin matvæli telja þeir sig gjarnan vera að fá ósvikna vörur beint frá framleiðanda, þar sem rekjanleiki vörunnar og sýnileiki er alltaf að verða mikilvægari fyrir neytendur. Það er mikilvægt fyrir ferðaþjónustuna að auka framboð á staðbundnum matvælum þegar kemur að sjálfbærri ferðaþjónustu en samspil staðbundinnar matvælaframleiðslu og ferðaþjónustu geta haft jákvæð áhrif á efnahag, félagslegt réttlæti, heilsu, velferð og umhverfi, og á annan hátt aukið sjálfbærni svæða. Markaðstækifæri í sjálfbærri ferðaþjónustu eru mikil og þar skapast möguleikar fyrir framleiðendur staðbundinna matvæla. Á Íslandi er verið að vinna að uppbyggingu staðbundinna matvæla og ferðaþjónustu á mörgum stöðum, meðal annars í gegnum t.d. Visit Iceland, Iceland Naturally, Food and Fun, Matís ehf., Beint frá býli og fleiri samtaka. Auk þess bjóða veitingahús og verslanir upp á meira úrval af staðbundnum matvælum en áður. Tekin voru viðtöl við 3 aðila sem tengjast staðbundinni matvælaframleiðslu og/eða sölu til að fá svar við spurningunni hvort að staðbundin matvæli eru mikilvæg í ferðaþjónustu á Íslandi?
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sunneva Eiðsdóttir 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13775
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13775