Back to results

Hólar University College

Hollur er heimafenginn baggi : ferðaþjónustubændur og matvæli

Abstract

dc:description.abstract

Frá upphafi byggðar á Íslandi hefur landbúnaður átt stóran þátt í sögu lands og þjóðar og ekki er langt síðan að flestir Íslendingar áttu einhver skyldmenni sem bjuggu í sveit en nú er öldin önnur. Flestir íbúar landsins búa í þéttbýli og einungis fáir búa í sveit og stunda landbúnað. Umræða síðustu missera hefur verið um framtíð íslensks landbúnaðar og hvernig hægt væri að styrkja hann og snúa við þeirri þróun sem á sér stað með því að efla ferðaþjónustu með aukinni heimavinnslu og beinni sölu afurða. Viðfangsefni verkefnisins er ferðaþjónusta bænda með áherslu á matarferðaþjónustu og það hvort bændur nýti sér matvæli / hráefni sem þeir framleiða sjálfir og hvort þeim finnist það skipta máli. Viðtöl voru tekin við ferðaþjónustubændur og unnið út frá fyrirliggjandi gögnum um matarferðaþjónustu, dreifbýlisferðaþjónustu og rannsóknum sem gerðar hafa verið. Niðurstaðan sýnir að ferðaþjónustubændur nýta sér sína framleiðslu og finnst það skipta máli vegna ímyndar, sérstöðu og fjárhagslegs ávinnings.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Benný Finnbogadóttir 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13400
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13400

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Benný Finnbogadóttir 1970-. Hollur er heimafenginn baggi : ferðaþjónustubændur og matvæli. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13400