Back to results

Bifröst University

Togstreita fagurfræði og stjórnunar í starfi sýningarstjóra : "að mála með fólki og hugmyndum"?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu rannsóknarverkefni til MA prófs í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst, Togstreita fagurfræði og stjórnunar í starfi sýningarstjóra - „að mála með fólki og hugmyndum.“?1, er sjónum beint að hlutverki sýningarstjórans innan myndlistar, annars vegar sem sérfræðings sem tilheyrir ákveðnu fagi og hins vegar sem listræns stjórnanda. Sjónum verður beint að helstu breytingum í sýningastjórn sem fags erlendis og sú þróun borin saman við framrás innan fagsins hér á Íslandi. Í þeim tilgangi voru tekin viðtöl við einstaklinga sem starfa innan fagsins í dag og sú umræða sem átt hefur sér stað innan greinarinnar síðastliðin ár rannsökuð út frá rituðum greinum og erindum á málþingum. Samhliða þessu verður reynt að varpa ljósi á það í hverju starf sýningarstjórans felst og þá einkum skoðað hvar skilin á milli stjórnunarlegs og fagurfræðilegs hlutverks hans liggja. Í því samhengi verður þeirri spurningu velt upp hvort verk sýningarstjóra, myndlistarsýningin, geti talist listaverk hans. Í því samhengi verða hugmyndafræðilegar skilgreiningar myndlistarsýningarinnar skoðaðar í samhengi við sýningarrými af ólíkum toga sem og miðlun og framsetningu, með það að leiðarljósi að skoða sýninguna sem sjálfstætt höfundarverk sýningarstjóra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórunn Helga Benedikz 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9841
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9841

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórunn Helga Benedikz 1983-. Togstreita fagurfræði og stjórnunar í starfi sýningarstjóra : "að mála með fólki og hugmyndum"?. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9841