Back to results

Bifröst University

Endurskoðun reglna um forsjá barna : eru niðurstöður forsjármála fyrir dómstólum fyrirsjáanlegar miðað við kerfið eins og það er í dag : ætti að veita dómara heimild til að dæma áframhaldandi sameiginlega forsjá?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður fjallað um endurskoðun reglna um forsjá barna. Fjallað verður um frumvarp til laga um breytingar á barnalögum og hvort veita eigi dómurum á Íslandi heimild til að dæma áframhaldandi sameiginlega forsjá. Sameiginleg forsjá var lögfest sem meginregla með breytingu á barnalögum árið 2006. Í ritgerðinni verður gerð grein fyrir því hvað felst í sameiginlegri forsjá, inntaki hennar og réttaráhrifum þess að fara sameiginlega með forsjá barns. Fjallað verður um hvernig núgildandi löggjöf heldur utan um sameiginlega forsjá og skoðað hvort og hvernig þyrfti að breyta núgildandi löggjöf í takt við nútíma aðstæður. Einnig verður fjallað um þau úrræði sem eru fyrir hendi þegar upp kemur ágreiningur á milli foreldra sem fara sameiginlega með forsjá. Þá verður skoðað hvort niðurstöður í forsjármálum geti verið of fyrirsjáanlegar miðað við kerfið eins og það er í dag. Samkvæmt íslenskum rétti hafa dómstólar ekki heimild til að dæma áframhaldandi sameiginlega forsjá vilji forsjáraðili eða báðir forsjáraðilar slíta henni. Skoðað verður hvaða sjónarmið ráða þá úrslitum þegar báðir foreldrar eru jafn hæfir forsjáraðilar en dómari hefur aðeins heimild til að dæma öðru foreldrinu óskipta forsjá.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynja Baldursdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9806
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9806

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynja Baldursdóttir 1979-. Endurskoðun reglna um forsjá barna : eru niðurstöður forsjármála fyrir dómstólum fyrirsjáanlegar miðað við kerfið eins og það er í dag : ætti að veita dómara heimild til að dæma áframhaldandi sameiginlega forsjá?. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9806