Global ETD Search
Search theses and dissertations gathered from participating repositories worldwide. Every result links back to the library that holds it. No account is needed.
Results
Showing 1 to 20 of 82 for “"Viðskiptalögfræði"”.
-
Um hvað snýst þagnarskylda?
Í þessu lokaverkefni til BS gráðu í viðskiptalögfræði er ætlunin að kanna hvað þagnarskylda er, hver er tilgangur þagnarskyldu, hver gildandi réttur er varðandi þagnarskylduna, og kanna hvort um sé að ræða takmarkanir á henni eða frávik? Í framhaldi af því er vert að skoða siðareglur og lagareglur …
-
Bótaréttur manna vegna setu í gæsluvarðhaldi að ósekju sbr. 228. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
… sem er lokaverkefni höfundar til BSc. gráðu í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst, er ætlað að skilgreina bótarétt þeirra manna sem setið hafa í gæsluvarðhaldi að ósekju á Íslandi. Til þess að unnt sé að skýra frá því, með fullnægjandi hætti, hvernig bótarétt í slíkum málum er almennt …
-
Erfðagjörningar : arfleiðsluheimild, arfleiðsluhæfi, vottun, ógilding, misneying : VI kafli erfðalaga nr. 8/1962
Markmið þessarar lokaritgerðar er að rannsaka hvernig staðið er að gerð erfðaskráa. Höfundur ásetti sér að rannsaka á sem fræðilegastan hátt VI. kafla erfðalaga nr. 8/1962, sem fjallar um arfleiðsluhæfi, en á þeim kafla byggist lokaverkefni þetta. Þá skoðaði höfundur sérstaklega þá dóma sem fallið …
-
Um vörumerki og mat á ruglingshættu milli vörumerkja
Vörumerki fyrirtækis er eitt það verðmætasta í eigu þess og skiptir réttarvernd vörumerkisins því miklu máli. Það skiptir fyrirtæki gríðarlegu máli að ekki sé gengið inn á eignarrétt þess með tilkomu nýrra vörumerkja sem gætu hugsanlega dregið úr eftirspurn eftir vörum sem auðkenndar eru með eldra …
-
Réttur almennings til upplýsinga hjá stjórnvaldi á grundvelli upplýsingalaga
Það er grundvallaratriði lýðræðis að opin og upplýst umræða geti farið fram innan þjóðfélagsins. Meginforsenda þeirrar umræðu er að almenningur geti fylgst með störfum stjórnvalda, annað hvort á beinan hátt eða með milligöngu fjölmiðla. Í ritgerð þessari verður upplýsingaréttur almennings skoðaður …
-
Geta Íslendingar öðlast vernd á heitinu Skyr út frá landfræðilegri tilvísun?
Verkefnið er unnið með það að markmiði að kafa örlítið dýpra í hugverkarétt og þá einna helst vörumerkjarétt og landfræðilegar tilvísanir. Fyrir utan að lestur laga og frumvarpa til laga, á þessu sviði voru lesnir og kannaðir helstu alþjóðasáttmálar á sviði hugverkaréttar, reifaðir voru dómar á því …
-
Þvingunarráðstafanir í þágu rannsóknar sakamál og helstu skilyrði þeirra
Í þessari ritgerð leitast höfundur við að greina hverjar eru helstu þvingunarráðstafanir í þágu rannsóknar sakamála hér á landi og hver eru helstu skilyrði sem liggja að baki framkvæmd þeirra. Viðfangsefnið er skoðað með hliðsjón af íslenskri dómaframkvæmd og dómar þannig fléttaðir saman við …
-
Misneyting skv. 31. gr. samningalaga nr. 7/1936
Í III. kafla laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, er að finna ákvæði um ógilda löggerninga. Þar er að finna ýmsar ástæður þess að löggerningur sem stofnaður hefur verið til, verði talinn ógildur. Í 31. gr. laganna er hið svokallaða misneytingarákvæði. Markmið þessarar …
-
Standast lög nr. 31/2010 fyrir dómstólum og hver eru áhrif þeirra
Í þessari ritgerð er leitast við að gera skil á því hvort og þá að hvaða leiti lög nr. 31/2010 halda fyrir dómstólum og hvort tilefni sé til að lögin gildi varanlega en ekki einungis tímabundið. Til þess að gera efninu sem best skil var farið yfir almenn atriði gjaldþrotaréttar og helstu atriði er …
-
Mismunandi réttarstaða starfsmanna á opinberum- og almennum vinnumarkaði varðandi uppsagnir úr starfi
Frá efnahagshruninu á Íslandi í október 2008 hefur uppsögnum, bæði á einkamarkaði og hjá hinu opinbera fjölgað verulega. Nú liggur fyrir að skera þarf mikið niður hjá ríki og sveitarfélögum. Vaknaði áhugi hjá höfundi að kanna hvaða lög og reglur gilda um uppsagnir starfsmanna og skoða hvernig það …
-
Lækkunarregla 24. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993
Árið 1993 voru sett á Íslandi skaðabótalög nr. 50/1993. Í þeim lögum var að finna almenna lækkunarheimild sem ætlað var að vera eins konar félagslegur öryggisventill fyrir þau tilvik þar sem almennar reglur skaðabótaréttarins myndu þykja leiða til ósanngjarnrar niðurstöðu. Ritgerð þessi fjallar um …
-
31. grein samningalaga nr. 7/1936 og helstu skilyrði hennar
Í þessari ritgerð leitast höfundur við að varpa ljósi á 31. grein samningalaga nr. 7/1936 og helstu atriði hennar. Viðfangsefnið er skoðað með hliðsjón af íslenskri dómaframkvæmd og dómar þannig fléttaðir saman við meginmálið eftir því sem við á. Sérstök áhersla er lögð á að fjalla skilmerkilega um …
-
Refsiréttur : um 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 : þegar ekki hlýst bani af atlögu
Með lögum um breytingar á almennum hegningarlögum nr. 20/1981 var annarri málsgrein bætt við 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var þetta gert þar sem of ólík brot voru heimfærð undir ákvæðið sem tók til allt frá minniháttar líkamsmeiðingum, t.d. beinbrot, og allt til stórfelldra …
-
Mannorðsmorð á mettíma : Hallar á rétt manna til friðhelgi einkalífs undir formerkjum tjáningarfrelsis í tengslum við nafngreiningu grunaðra aðila í fjölmiðlum og öðrum miðlum?
Nafngreining grunaðra aðila í fjölmiðlum og netmiðlum hefur færst í vöxt á síðustu árum og sérstaklega eftir efnahagskreppuna sem skall á Íslandi haustið 2008. Það þykir ekkert tiltökumál að nafngreina grunaða aðila nú til dags þrátt fyrir löggjöf sem verndar mannorð og æru manna. Þjóðþekktar …
-
Innherjasvik í ljósi laga um verðbréfaviðskipti
Í lokaverkefni þessu er fjallað um innherjasvikaákvæði laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Ákvæðið bannar innherjum að stunda viðskipti með fjármálagerninga á meðan þeir ráða yfir innherjaupplýsingum. Innherji þarf því ekki að hafa nýtt sér upplýsingarnar á neinn hátt við fjárfestingarákvörðun …
-
Lög um ábyrgðarmenn nr. 32/2009, með hliðsjón af almennum reglum um lagaskil og afturvirkni laga
Frá efnahagshruninu haustið 2008 þegar þrír stærstu bankar landsins fóru í gjaldþrot urðu miklar breytingar í íslensku lagaumhverfi. Mörg af þeim lögum er voru sett hafa áhrif á önnur lög, bæði var ákvæðum kippt úr sambandi og heilu lögunum vikið til hliðar. Því fannst höfundi áhugavert að kanna …
-
Um eignarhæfi vatns
Í lokaverkefni þessu er leitast við að svara því, í hvaða formi, mynd, stöðu eða rennsli, vatn sé hæft til eignar. Hver geti átt það og hverskonar réttindi er eðlilegt að aðili eða aðilar, hafi yfir því að ráða, þegar horft er til eðlis þess og þýðingar. Í fyrsta kafla meginmálsins er ljósi varpað …
-
Hver er staða minnihlutahluthafa gagnvart ráðandi hluthöfum stórra hlutafélaga og misnotkun þeirra á stöðu sinni?
Við bankahrunið 2008 kom í ljós að löggjöf á réttarsviðinu virðist ekki hafa verið fullnægjandi. Breytingar á hlfl. með lögum nr. 89/2006, virðast ekki hafa verið nógu róttækar miðað við aðstæður. Ákvæði varðandi starfandi stjórnarformenn og viðskipti félaga með eigin hluti voru t.d. ekki nógu …
-
Hvað ræður skattalegu heimilisfesti lögaðila skv. íslenskum skattarétti og ákvæðum tvísköttunarsamninga
Ritgerðin fjallar um það hvaða reglur ráði því í hvaða ríki félag telst skattskylt, sérstaklega með tilliti til ákvæða laga um tekjuskatt nr. 90/2003 sem og ákvæðum tvísköttunarsamninga. Helstu hugtök sem tekin eru fyrir eru heimilisfesti og við ákvörðun heimilisfesti er m.a. litið til efnisinntaks …
-
Skipun dómara í embætti samkvæmt lögum um dómstóla nr. 15/1998 með tilliti til þrískiptingar ríkisvaldsins
Meginmarkmið þessarar ritgerðar var að koma með greinargóða umfjöllun á skipan dómara í embætti fyrir sem og eftir lagabreytingu nr. 45/2010 á lögum um dómstóla nr. 15/1998. Kannað var hvernig staðið var að skipun dómara áður og hvaða gangrýni sú skipanaleið sætti. Einnig var rakið hvort sú leið …
Page 1 of 5