Back to results

Bifröst University

Siðfræðileg stjórnun á tímum niðurskurðar og uppsagna í heilbrigðiskerfinu : eru stjórnendur að temja sér siðferðilegan hugsunarhátt í hagræðingarkröfum nútímans?

Abstract

dc:description.abstract

Við lifum á tímum hraðra efnahagsbreytinga og hefur þörfin á niðurskurði og hagræðingu í kjölfar efnahagshrunsins sjaldan verið meiri. Íslenska heilbrigðiskerfið er þar engin undantekning og stendur frammi fyrir gífurlega erfiðu árferði þar sem fjárlög til þess hafa verið skert svo um munar. Yfirvofandi niðurskurður gæti leitt til uppsagna starfsfólks sem í kjölfarið gæti leitt til aukins álags á starfsfólk og stefnt gæðum og öryggi þjónustunnar í uppnám. Uppsagnir eru viðkvæmt málefni og því mikilvægt að ákvarðanataka þeirra sé gerð að vel íhuguðu máli. Mikilvægt er að hafa siðfræðilega aðferðarfræði að leiðarljósi i þeim málum. Siðferðilegt viðmót stjórnenda í garð undirmanna sinna er ekki síður mikilvægt en siðferði heilbrigðisstarfsfólks gagnvart sínum skjólstæðingum. Leonard J. Weber er höfundar bókar um hvernig hægt er að temja sér hugsunarhátt viðskiptasiðfræðinnar í heilbrigðisþjónustu. Í þeirri bók setur hann meðal annars fram líkan sem gott er að styðjast við þegar ákvörðun um uppsagnir eru teknar. Bókin er höfð til hliðsjónar í þessari rannsókn. Tilgangur rannsóknarinnar var að rannsaka hvort stjórnendur í íslenska heilbrigðiskerfinu notist við siðfræðilega aðferðafræði í erfiðum ákvarðanatökum á borð við fjöldauppsagnir. Spurningarlisti var saminn út frá líkani í bók Leonard J. Weber‘s og sendur út í tölvupósti til stjórnenda og trúnaðarmanna Landspítalans, Kragasjúkrahúsanna, Fjórðungssjúkrahúsanna og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Alls fengu 429 manns spurningarkönnunina til sín í tölvupósti og var meðaltalssvörun 41,1%. Svörun könnunarinnar var síðan borin saman við líkan Weber‘s og grunnkenningar siðfræðinnar. Sá samanburður sem gerður var sýndi fram á að siðferðislegur hugsunarháttur er ekki hafður að leiðarljósi við ákvarðanatökur uppsagna í íslenska heilbrigðiskerfinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þóra Gunnlaugsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6680
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6680

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þóra Gunnlaugsdóttir 1982-. Siðfræðileg stjórnun á tímum niðurskurðar og uppsagna í heilbrigðiskerfinu : eru stjórnendur að temja sér siðferðilegan hugsunarhátt í hagræðingarkröfum nútímans?. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6680