Back to results

Bifröst University

Vinnumarkaður í fjármálakreppu

Abstract

dc:description.abstract

Haustið 2008 skalla á alvarleg fjármálakreppa hér á landi sem orsakaði alvarlegt hrun á hlutabréfamarkaði og mikla lækkun á fasteignamarkaðri. Skuldir hins og opinbera og einkageirans hafa margfaldast á stuttum tíma og fjöldi heimila eru skuldum vafin. Framleiðsla hefur dregist saman og atvinnuleysi aukist mikið. Eitt mesta vandamál sem lönd standa frammi í fjármálakreppum og efnahagslægðum er atvinnuleysi og þróun þess eftir að kreppuárum líkur. Rannsóknir sýna að atvinnuleysi heldur áfram að aukast þrátt fyrir að botni niðursveiflunnar sé náð og jafnvel lengur. Með það að leiðarljósi var skoðað hvaða áhrif fjármálakreppan hefur haft á Ísland og hverjir verða fyrir mestu óhagræði í kjölfar efnahagslægðarinnar. Til samanburðar voru skoðaðar rannsóknir og skýrslur sem birtar hafa verið um fjármálakreppur og afleiðingar þeirra. Niðurstöður benda til þess að lönd sem lent hafa í alvarlegum fjármálakreppum deili með sér sameiginlegum einkennum. Þessi einkenni eru þrennskonar, í fyrsta lagi hrun á hlutabréfa-og fasteignamarkaði. Í öðru lagi dregst framleiðsla saman og atvinnuleysi eykst. Í þriðja lagi aukast skuldir hins opinbera, annars vegar vegna kostnaðarsamra björgunaraðgerða og hins vegar vegna þeirra áhrifa sem fjármálakreppur hafa á tekjuhalla hins opinbera. Mistök í stjórn efnahags-og peningamála getur reynst dýrkeypt og snúið hefðbundnum samdrætti í kjölfar fjármálakreppa upp í alvarlega efnahagslægð. Greining vandamála og úrlausnir geta komið í veg fyrir kerfislæga breytingu sem á endanum getur leitt til langtíma atvinnuleysis. Samdráttur í framleiðslu og aukið atvinnuleysi dregur úr hagvexti og hægir um leið á bata.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Georgia Olga Kristiansen 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6204
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6204

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Georgia Olga Kristiansen 1979-. Vinnumarkaður í fjármálakreppu. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6204