Back to results

Bifröst University

Einkaborg

Abstract

dc:description.abstract

Skýrslan fjallar um hvort arðbært sé að stofna einkarekinn leikskóla í Reykjavík og hvað gjaldskrá þurfi að vera há til að leikskólinn sé rekinn á kostnaðarverði. Allir starfsmenn skólans sem starfa við umönnun barna eru leikskólakennarar að mennt og fjöldi barna sem hver kennari þarf að hafa umsjón með er minni heldur en almennt. Nýjar hugmyndir eru kynntar til að auka þjónustu við foreldra og markaðsþörf reiknuð út frá hagtölum. Gert er ráð fyrir að greiða starfsfólki 10% hærri laun en gildandi kjarasamningar gera ráð fyrir. Höfundi þykir ljóst eftir gerð þessarar skýrslu að ekki sé arðbært að stofna einkarekinn leikskóla hvort sem um er að ræða rekstur með þjónustusamning við Reykjavíkurborg eða ekki. Útreikningar sýndu að til að reka leikskólann á kostnaðarverði þyrfti gjaldskráin að vera 21 sinnum hærri en gjaldskrá Leikskólasviðs Reykjavíkurborgar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Grétar Freyr Grétarsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6100
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6100

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Grétar Freyr Grétarsson 1985-. Einkaborg. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6100