Back to results

Bifröst University

Starfsánægja meðal bílasala á erfiðum tímum

Abstract

dc:description.abstract

Bílasalar eru ein af þeim starfsstéttum sem breytt efnahagsástand hefur komið illa niður á. Þegar kaupmáttur fólks minnkar sparar fólk í lúxusvörum það er vörum sem eru þeim ekki lífsnauðsynlegar t.d. bílum. Markmið þessarar rannsóknar er að finna út hvaða þættir skipta starfsmenn bílasala máli til að stuðla að starfsánægju þeirra, mikilvægi stefnu og stjórnunar til að viðhalda starfsánægju og hvaða áhrif efnahagsástandið hefur haft á starfsánægju. Rannsóknaraðferðin sem notast er við er eigindleg rannsókn í formi djúpviðtala sem tekin voru við starfsmenn og yfirmenn bílasala. Rannsóknin ber heitið „Starfsnánægja á meðal bílasala á erfiðum tímum“ og þær rannsóknarspurningar sem settar eru fram í upphafi miða að því að leiða í ljós hvað felst í starfsánægju, hvaða þættir skipta máli þegar kemur að starfsánægju og hvernig breytt efnahagsástand hefur haft áhrif á starfsánægjuna. Rannsóknarspurningarnar eru eftirfarandi; - Hvaða aðferðir/kenningar eru notaðar til að kanna starfsánægju? - Hvaða þættir hafa áhirf á starfsánægju? - Hversu mikilvæg er stjórnun og stefna þegar kemur að starfsánægju? - Hvaða áhrif hefur breytt efnahagsástand á starfsánægju? Á heildina litið voru viðmælendur almennt sammála um þeir væru ánægðir í vinnu sinni þrátt fyrir óvissu og óstöðugt ytra umhverfi. Þættirnir sem komu fram í viðtölunum sem rannsakandi tók samræmast tvíþáttakenningu Herzberg‘s um þá þætti sem skipta máli og að slæmt umhverfi leiði til óánægju, sem í þessu tilfelli er efnahagskreppa. Stefna og stjórnun skipta máli til að koma í veg fyrir starfsóánægju. Stjórnun skiptir meira máli en stefnan að mati viðmælenda, þar sem þeir töldu allir að hún væri mikilvægur þáttur. Ytra umhverfi hefur áhrif á starfsánægjuna þar sem það hefur áhrif á skap og tilfinningar starfsmanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásta Særós Haraldsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6078
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6078

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásta Særós Haraldsdóttir 1984-. Starfsánægja meðal bílasala á erfiðum tímum. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6078