Bifröst University
Kílómetragjald: Er kílómetragjaldið réttmæt leið til að fjármagna vegakerfið á Íslandi?
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari rannsókn er fjallað um kílómetragjald á rafbifreiðar á Íslandi, sem innleitt var í upphafi ársins 2024, og fyrirhugaða gjaldtöku á kílómetragjaldi á dísel- og bensínbifreiðar. Markmið rannsóknarinnar er að greina viðhorf og upplifun bifreiðaeigenda gagnvart þessari nýju gjaldtöku, ásamt því að kanna hvort þátttakendur telji sig nægilega upplýsta um fyrirkomulag gjaldsins og hvort þeir geti gert raunhæfa kostnaðaráætlun sem byggist á þeirra eigin akstri. Einnig er það kannað hvort viðhorf til gjaldsins sé breytilegt eftir búsetu bifreiðaeiganda, í ljósi þess að aðgengi að samgöngum og vegakerfi er mismunandi milli landshluta. Rannsóknin byggir á megindlegri aðferðafræði þar sem lögð var fyrir rafræn spurningakönnun. Spurningakönnuninni var dreift á samfélagsmiðlum höfunda og með tölvupósti til allra nemenda Háskólans á Bifröst. Úrtakið er hentugleikaúrtak og því ekki hægt að alhæfa niðurstöður yfir á þýðið í heild sinni. Niðurstöðurnar gefa til kynna að þekking á kílómetragjaldi sé misjöfn meðal þátttakenda og að viðhorf til þess hversu réttmæt gjaldtakan sé ráðist að einhverju leyti eftir búsetu. Margir þátttakendur telja að gjaldið muni hafa í för með sér aukin fjárhagslegan kostnað, en færri telja þó að það muni hafa áhrif á akstursvenjur þeirra. Rannsóknin veitir innsýn í upplifun bifreiðaeigenda af þessari nýju skattheimtu og getur nýst sem grundvöllur fyrir frekari umræðu og eða mótun á framtíðarútfærslu gjaldtöku vegna notkunar á vegakerfi landsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Anna Kristín Agnarsdóttir 1993-
- Unnur Þóra Sigurðardóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53850
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53850