Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að greina hvernig hægt er að innleiða ferðaþjónustuna með markvissum hætti inn í almannavarnakerfið á Íslandi. Rannsóknin byggir á starfendarannsókn (e. action research) þar sem rannsakandi er virkur þátttakandi í því kerfi sem rannsakað er. Notast var við eigindlega aðferðafræði þar sem tekin voru viðtöl við lykilaðila úr ferðaþjónustu og almannavarnakerfinu, auk þess sem fyrirliggjandi gögn og skjöl voru greind. Gögnin voru unnin með þemagreiningu með það að markmiði að varpa ljósi á núverandi stöðu, helstu áskoranir og mögulegar leiðir til umbóta. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þátttaka ferðaþjónustunnar innan almannavarnakerfisins hefur lengi verið takmörkuð og að samstarf hefur að verulegu leyti byggst á óformlegum og persónubundnum tengslum. Helstu áskoranir snúa að skorti á skýrri ábyrgðar- og hlutverkaskiptingu, veikleikum í upplýsingaflæði og skorti á formfestu í samstarfi. Jafnframt benda niðurstöður til þess að ferðaþjónustan hafi ekki verið nægilega samþætt í viðbúnaði og áætlanagerð, heldur fremur komið að málum þegar atburðir hafa þegar átt sér stað. Þrátt fyrir þetta má greina jákvæða þróun á síðustu árum, þar sem aukin vitund hefur skapast um mikilvægi ferðaþjónustunnar sem lykilhagsmunaaðila í almannavörnum, sérstaklega í kjölfar atburða á borð við COVID-19 faraldurinn og eldgosahrinu á Reykjanesi. Viðmælendur leggja áherslu á þörf fyrir aukna formfestu, skýrari verkferla, skilgreiningu ábyrgðar og þróun samráðsvettvanga milli opinberra aðila og einkageirans. Rannsóknin leggur til að innleiðing ferðaþjónustunnar í almannavarnir byggist á skýru samstarfslíkani þar sem Ferðamálastofa gegnir samhæfingarhlutverki gagnvart greininni og tengingu við Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Lagt er til að þróa formlega samstarfssamninga, skýra boðleiðir og samþætta ferðaþjónustuna inn í fyrirliggjandi stjórnskipulag almannavarna, svo sem Samhæfingarstöð og aðgerðastjórnir. Slík nálgun getur stuðlað að bættri ákvarðanatöku, aukinni skilvirkni í viðbrögðum, auknu öryggi ferðamanna og styrktri seiglu samfélagsins í heild. Helstu niðurstöður benda til þess að markviss innleiðing ferðaþjónustunnar í almannavarnir sé bæði nauðsynleg og raunhæf, en krefjist formfestingar, skýrrar stefnumótunar og áframhaldandi samstarfs milli lykilaðila.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Dagbjartur Kristinn Brynjarsson 1971-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53844
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53844