Bifröst University
Misnotkunarvarnir í alþjóðlegum skattarétti: Samanburður á PPT-reglu OECD, 57. gr. tsl. og BEPS aðgerðaráætlun 6
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um misnotkunarvarnir í alþjóðlegum skattarétti með sérstakri áherslu á samanburði þriggja lykilúrræða: PPT-reglan eða reglan um meginmarkmið (e. Principal Purpose Test samkvæmt 29. gr. samningsfyrirmyndar OECD, almennri skattasniðgöngureglu 1. mgr. 57. gr. tekjuskattslaga nr. 90/2003 og viðmiða BEPS aðgerðaráætlunnar 6 um misnotkun tvísköttunarsamninga. Rannsóknarspurningin er hvort og að hvaða marki þessi úrræði veiti heildstæða og skilvirka vernd gegn misnotkun tvísköttunarsamninga í ljósi aukinnar alþjóðlegrar samhæfingar. Fræðilegur grunnur ritgerðarinnar byggist á alþjóðlegum skattarétti, samningsfyrirmynd OECD, BEPS-aðgerðaráætluninni og hugtakinu raunverulegur eigandi. Aðferðafræðin byggist á réttarheimildagreiningu og samanburðarrannsókn þar sem stuðst er við löggjöf, dómaframkvæmd og fræðilega umfjöllun frá Íslandi, Danmörku, Frakklandi, Ítalíu, Spáni, Sviss og Kanada. Helstu niðurstöður sýna að íslenskt kerfi misnotkunarvarna veitir að meginstefnu heildstæða vernd, byggt á þremur samverkandi stoðum: raunveruleikareglu sbr. 1. mgr. 57. gr. tsl., hugtakinu raunverulegur eigandi og PPT-reglunni samkvæmt MLI. Þessar varnir starfa ekki sem samkeppniskerfi heldur sem þriggja þrepa varnarkerfi þar sem innlendar og alþjóðlegar reglur styrkja hvor aðra. Þó benda niðurstöður til þess að réttarframkvæmd um PPT-regluna sé enn takmörkuð á Íslandi og að skýrari leiðbeiningar og lagaviðmið séu æskileg til að auka fyrirsjáanleika og réttaröryggi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Brynjar Arnarson 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53841
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53841