Back to results

Bifröst University

Mannleg dómgreind eða gervigreind? Hver eru viðhorf nemanda í íslenskum háskólum til notkunar gervigreindar í ákvarðanatöku fyrirtækja?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf nemenda í íslenskum háskólum til notkunar gervigreindar í ákvörðunartöku fyrirtækja. Rannsóknin byggði á megindlegri aðferð þar sem gögnum var safnað með rafrænni spurningarkönnun semlögð var fyrir nemendur í íslenskum háskólum. Alls uppfylltu 126 þátttakendur skilyrði rannsóknarinnar. Gögn voru greind með lýsandi tölfræði, fylgnigreiningu, t-prófi og einsþátta dreifigreiningu. Niðurstöðurnar sýndu að viðhorf þátttakenda til notkunar gervigreindar í ákvörðunartöku fyrirtækja voru almennt fremur jákvæð, þó jafnframt einkennst af ákveðinni varfærni. Þátttakendur töldu gervigreind einkum geta nýst sem stuðningstæki fremur en sjálfstætt tól til ákvarðana. Marktæk tengsl fundust milli tíðari notkunar gervigreindar og jákvæðari viðhorfa til notkun hennar í ákvarðanatöku. Einnig reyndist traust til gervigreindar tengjast auknu samþykki hennar í framtíðarstörfum nemenda. Þá kom fram marktækur munur eftir námssviði, þar sem nemendur í viðskipta- og hagfræðigreinum reyndust jákvæðari gagnvart notkun gervigreindar en nemendur á öðrum sviðum. Niðurstöðurnar benda til þess að háskólanemar líti almennt á gervigreind sem gagnlegt verkfæri í ákvörðunartöku fyrirtækja, en leggi um leið áherslu á mikilvægi mannlegrar dómgreindar, yfirferðar og varfærni við notkun hennar í ákvarðanatöku fyrirtækja.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gígja Karitas Thorarensen 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53838
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53838

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gígja Karitas Thorarensen 2002-. Mannleg dómgreind eða gervigreind? Hver eru viðhorf nemanda í íslenskum háskólum til notkunar gervigreindar í ákvarðanatöku fyrirtækja?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53838