Back to results

Bifröst University

Orðræða um innflytjendur í íslenskum fjölmiðlum

Abstract

dc:description.abstract

Á Íslandi hefur orðið hröð fjölgun innflytjenda samhliða hraðri fólksfjölgun á alþjóðavísu og árið 2025 mældust þeir 21% af íbúum landsins. Þessar öru lýðfræðilegu breytingar hafa haft veruleg áhrif á lítið og tiltölulega einsleitt samfélag. Innflytjendamál hafa verið áberandi í umræðunni, þar sem fjölmiðlar gegna veigamiklu hlutverki í mótun skilnings almennings á innflytjendum, bæði sem samfélagslegu viðfangsefni og pólitísku ágreiningsefni. Markmið rannsóknarinnar var að greina hvernig fjallað er um innflytjendur í íslenskum fjölmiðlum. Sérstök áhersla var lögð á að skoða hvaða rammar voru ríkjandi, hvernig tilfinningalegur tónn umfjöllunar var og hvernig pólitísk orðræða birtist í fjölmiðlum. Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar byggir á rammakenningu (e. framing) Entman (1993) sem fjallar um það hvernig fjölmiðlar móta merkingu málefna með vali og áherslu á tiltekna þætti veruleikans. Rannsóknin byggir á megindlegri innihaldsgreiningu á umfjöllun þriggja íslenskra fréttamiðla um innflytjendur. Gögnin voru greind erfisbundið með kóðun. Niðurstöðurnar sýna að umfjöllun fjölmiðla um innflytjendamál einkennist fyrst og fremst af pólitískum og lagalegum áherslum ásamt kerfis- og stofnanalegum sjónarmiðum. Tónn umfjöllunar var að mestu hlutlaus og niðurstöðurnar sýndu að orðræða og rammaval birtust mismunandi eftir stjórnmálaflokkum. Heildarniðurstöðurnar endurspegla gagnvirkt samspil fjölmiðla og stjórnmála í litlu og þéttu fjölmiðlaumhverfi, þar sem rammaval og sýnileiki mótast af pólitísku samhengi þess tímabils sem rannsóknin nær til.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Neval Rakel Kamilsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53833
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53833

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Neval Rakel Kamilsdóttir 1991-. Orðræða um innflytjendur í íslenskum fjölmiðlum. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53833