Back to results

Bifröst University

Allt rýmið utan veggjanna: Rannsókn á upplifun tónlistarkonu af samfélagsmiðuðum tónlistarverkefnum

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi lýsir sjálfsetnógrafískri rannsókn tónlistarkonu á upplifun sinni af bæði formlegu tónlistarnámi og óformlegu. Í ritgerðinni er leitast við að varpa ljósi á þá kerfislægu þætti í formlegu námi sem höfðu mótandi og neikvæð áhrif á faglega sjálfsmynd höfundar. Þar má nefna þröngar skilgreiningar á tónlistarlegri færni og umhverfi sem ýtir undir loddaralíðan (e. imposter phenomenon). Einnig er upplifun höfundar af samfélagsmiðuðum tónlistarverkefnum á vegum MetamorPhonics skoðuð, en þau flokkast sem óformlegt nám. Þar upplifði höfundur skýran tilgang og valdeflingu, og niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að styrkleikamiðuð nálgun, áhersla á frumsköpun tónlistar og aukin áhersla á félagslega þætti tónlistarsköpunar hafi haft jákvæð áhrif á sjálfsmynd höfundar. Upplifunin er sett í samhengi við viðtöl við aðra stjórnendur MetamorPhonics sem hafa sambærilega reynslu, sem og í fræðilegt samhengi. Rannsóknin byggir á aðferðum sjálfsetnógrafíu þar sem skrif eru nýtt sem rannsóknaraðferð og verkfæri til greiningar. Nýttar eru aðferðir úr framköllunar-sjálfsetnógrafíu (e. evocative autoethnography), þar sem gögn eru sett fram í formi einlægra smásagna sem lýsa upplifun höfundar. Markmið þeirra er að vekja hughrif og dýpka skilning lesanda á upplifun höfundar. Rannsókninni er ætlað að vera innlegg í umræður um sjálfsmynd tónlistarfólks og uppbyggingu náms. Takmörkuð umfjöllun hefur verið til staðar á íslensku um samfélagsmiðuð tónlistarverkefni, og er það von höfundar að rannsóknin stuðli að vitundarvakningu og leggi sitt af mörkum til fræðilegrar umræðu á þessu sviði hérlendis. Lykilorð: sjálfsetnógrafía, samfélagsmiðuð tónlistarverkefni, formlegt tónlistarnám, loddaralíðan, valdefling, sjálfsmynd

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Laufey Sunna Guðlaugsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53831
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53831

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Laufey Sunna Guðlaugsdóttir 1992-. Allt rýmið utan veggjanna: Rannsókn á upplifun tónlistarkonu af samfélagsmiðuðum tónlistarverkefnum. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53831