Back to results

Bifröst University

Hver er ábyrgð og hlutverk innri endurskoðunar og regluvarðar í íslenskum fjármálafyrirtækjum, og hvernig er þessum hlutverkum háttað í framkvæmd?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um hvernig innri endurskoðun og regluvörður móta og styðja við góða stjórnarhætti í íslenskum fjármálafyrirtækjum, og hvernig þessi tvö lykilhlutverk birtast í raun í íslenskri framkvæmd. Byggt er á dogmatískri aðferð þar sem íslenskur réttur myndar kjarnann en evrópskt regluverk og alþjóðlegir staðlar eru nýttir til að varpa ljósi á túlkun og samanburð. Lagaramminn sem gildir um innri endurskoðun og regluvörslu skýr. Í lögum um fjármálafyrirtæki og tengdum sérlögum, ásamt reglugerð um innra eftirlit, er hlutverk þessara eininga skilgreint með nokkurri nákvæmni, þ.e. sjálfstæði þeirra, skyldur, boðleiðir og ábyrgðarsvið eru afmörkuð á formlegan hátt. Þessi lagalegi grunnur fellur vel að alþjóðlegum viðmiðum, einkum þriggja lína varnarkerfinu og COSO‑rammanum, sem veita fræðilegt sjónarhorn á hvernig eftirlits- og áhættustýringarkerfi eiga að virka í heild. Þegar horft er til framkvæmdarinnar kemur þó í ljós að formleg uppbygging segir ekki alla söguna. Íslensk fjármálafyrirtæki hafa almennt sett upp þær einingar sem lögin krefjast og skipurit endurspegla að mestu leyti rétt hlutverkaskiptingu. Hins vegar sýna úrskurðir og sáttir Seðlabanka Íslands í málum nokkurra fjármálafyrirtækja að efnislegt samræmi við reglurnar er ekki alltaf tryggt. Þar má sjá dæmi um veikleika í áhættumati, áreiðanleikakönnunum, eftirlitstækjum og eftirfylgni stjórna með úrbótum. Þessi niðurstaða fellur að mati FATF á íslenska framkvæmd, þar sem bent er á að lagaramminn sé traustur en að framkvæmdin sé ekki ávallt í takt við hann. Heildarniðurstaðan er því sú að bilið milli formlegrar og efnislegrar reglufylgni er raunverulegt og mælanlegt. Vandinn liggur ekki í skorti á reglum heldur í því hvernig þær eru innleiddar og beitt í daglegu starfi. Til að brúa þetta bil þarf ekki ný lög heldur styrkari eftirlitsmenningu til að mynda með skýrari boðleiðum, raunverulegu sjálfstæði eftirlitseininga og stjórnir sem taka ábyrgð sína alvarlega og fylgja eftir þeim kröfum sem lagaramminn gerir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Haukur Daði Guðmarsson 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53828
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53828

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haukur Daði Guðmarsson 1989-. Hver er ábyrgð og hlutverk innri endurskoðunar og regluvarðar í íslenskum fjármálafyrirtækjum, og hvernig er þessum hlutverkum háttað í framkvæmd?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53828