Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um réttarstöðu einstaklinga sem verða fyrir tjóni í tengslum við notkun gervigreindar og metur hvort gildandi reglur íslensks réttar tryggi raunhæfa vernd í slíkum tilvikum. Áhersla er lögð á samspil persónuverndarlöggjafar og almennra reglna skaðabótaréttar og hvernig þessi réttarúrræði nýtast þegar tjón verður vegna sjálfvirkrar eða að hluta sjálfvirkrar ákvarðanatöku. Rannsóknin byggir á greiningu íslenskra laga og dómaframkvæmdar, með hliðsjón af Evrópurétti og þeirri réttarþróun sem á sér stað á sviði gervigreindar. Skoðað er hvernig hefðbundin viðmið skaðabótaréttar, einkum um saknæmi, orsakatengsl og sönnun, eiga við þegar tjón verður í tengslum við flókna stafræna upplýsingavinnslu. Jafnframt er metið hvort úrræði samkvæmt persónuverndarlöggjöf, svo sem réttur til upplýsinga, kvörtunar og skaðabóta, veiti einstaklingum raunhæfa möguleika til að bregðast við brotum á réttindum sínum. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að gildandi regluverk veiti að formi til mikilvægan grundvöll verndar, en að virkni þess ráðist af því hvernig reglunum er beitt í framkvæmd og hvort einstaklingar geti í reynd sýnt fram á skilyrði ábyrgðar. Sérstakar áskoranir felast meðal annars í tæknilegu flækjustigi, takmörkuðu gagnsæi og dreifðri ábyrgð milli þeirra aðila sem koma að þróun og notkun gervigreindarkerfa. Þá er dómaframkvæmd á þessu sviði enn takmörkuð, sem getur aukið réttaróvissu og haft áhrif á fyrirsjáanleika í beitingu reglna. Ritgerðin leiðir til þeirrar niðurstöðu að þótt gildandi reglur geti í mörgum tilvikum tekið á álitamálum sem tengjast notkun gervigreindar, kunni að vera þörf á frekari skýringum og aðlögun réttarreglna til að tryggja raunhæfa vernd tjónþola í stafrænu samfélagi. Þróun löggjafar og dómaframkvæmdar mun þar gegna lykilhlutverki, einkum með aukinni áherslu á gagnsæi, ábyrgð og aðgengi einstaklinga að réttarúrræðum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sara Rut Agnarsdóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53809
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53809