Back to results

Bifröst University

Þegar vélin veldur tjóni

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um réttarstöðu einstaklinga sem verða fyrir tjóni í tengslum við notkun gervigreindar og metur hvort gildandi reglur íslensks réttar tryggi raunhæfa vernd í slíkum tilvikum. Áhersla er lögð á samspil persónuverndarlöggjafar og almennra reglna skaðabótaréttar og hvernig þessi réttarúrræði nýtast þegar tjón verður vegna sjálfvirkrar eða að hluta sjálfvirkrar ákvarðanatöku. Rannsóknin byggir á greiningu íslenskra laga og dómaframkvæmdar, með hliðsjón af Evrópurétti og þeirri réttarþróun sem á sér stað á sviði gervigreindar. Skoðað er hvernig hefðbundin viðmið skaðabótaréttar, einkum um saknæmi, orsakatengsl og sönnun, eiga við þegar tjón verður í tengslum við flókna stafræna upplýsingavinnslu. Jafnframt er metið hvort úrræði samkvæmt persónuverndarlöggjöf, svo sem réttur til upplýsinga, kvörtunar og skaðabóta, veiti einstaklingum raunhæfa möguleika til að bregðast við brotum á réttindum sínum. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að gildandi regluverk veiti að formi til mikilvægan grundvöll verndar, en að virkni þess ráðist af því hvernig reglunum er beitt í framkvæmd og hvort einstaklingar geti í reynd sýnt fram á skilyrði ábyrgðar. Sérstakar áskoranir felast meðal annars í tæknilegu flækjustigi, takmörkuðu gagnsæi og dreifðri ábyrgð milli þeirra aðila sem koma að þróun og notkun gervigreindarkerfa. Þá er dómaframkvæmd á þessu sviði enn takmörkuð, sem getur aukið réttaróvissu og haft áhrif á fyrirsjáanleika í beitingu reglna. Ritgerðin leiðir til þeirrar niðurstöðu að þótt gildandi reglur geti í mörgum tilvikum tekið á álitamálum sem tengjast notkun gervigreindar, kunni að vera þörf á frekari skýringum og aðlögun réttarreglna til að tryggja raunhæfa vernd tjónþola í stafrænu samfélagi. Þróun löggjafar og dómaframkvæmdar mun þar gegna lykilhlutverki, einkum með aukinni áherslu á gagnsæi, ábyrgð og aðgengi einstaklinga að réttarúrræðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sara Rut Agnarsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53809
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53809

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sara Rut Agnarsdóttir 1991-. Þegar vélin veldur tjóni. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53809