Bifröst University
Hvernig upplifir starfsfólk eigið hlutverk og þátttöku í skipulags- og breytingaferli fyrirtækja?
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að greina hvernig starfsfólk upplifði þátttöku sína og eigið hlutverk í skipulags- og breytingaferlum fyrirtækja. Rannsóknin var byggð að blandaðri rannsóknaraðferð þar sem megindleg og eigindleg gögn voru notuð. Tekin voru fimm hálf-stöðluð viðtöl og í beinu framhaldi var gerð spurningakönnun sem alls 38 þátttakendur svöruðu en aðeins 24 luku við könnunina. Helstu niðurstöður benda til þess að lykilþættir í upplifun starfsfólks á breytingaferlum megi rekja til skýrra samskipta, góðrar upplýsingagjafar og þátttöku. Ljóst er að ef skortur er á upplýsingaflæði og þátttöku starfsfólks, getur orðið óvissa sem leiðir til minni skuldbindingar gagnvart breytingunum og minna trausts. Það skapar þá neikvætt viðhorf til breytinganna. Þátttakendur rannsóknarinnar sýndu fram á að því meiri þátttöku eða upplýsingar sem þeir fengu frá stjórnendum, því meira traust og jákvæðari afstaða var til breytinganna. Þá sýndu niðurstöður einnig að þátttaka ein og sér sé ekki nóg til að um jákvæða upplifun sé að ræða heldur verður þátttakan að hafa áhrif á breytingarnar og að starfsfólki finnist eins og á það sé hlustað. Niðurstöður úr þessari rannsókn eru í góðu samræmi við helstu rannsóknir sem hafa verið gerðar, sem leggja áherslu á mikilvægi samskipta, trausts og þátttöku starfsfólks í breytingaferlum. Þá sýna niðurstöður einnig að það er ekki einn þáttur sem ýtir undir jákvæðra upplifun til breytinganna heldur er þetta samspil margra félagslegra og skipulagðra þátta.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- María de Araceli Quintana 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53806
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53806