Back to results

Bifröst University

Gervigreind í Schengen-landamærastjórnun: Öryggissamþætting, persónuvernd og kerfislæg spenna innan Evrópusambandsins

Abstract

dc:description.abstract

Vinnsla lífkennagagna og notkun gervigreindar við landamærastjórnun hefur á undanförnum árum orðið eitt af mest áberandi og umdeildu viðfangsefnum persónuverndar innan Evrópusambandsins og einnig á Íslandi. Hröð þróun stafrænnar tækni, einkum útbreiðsla andlitsgreiningar og annarra sjálfvirkra auðkenningarkerfa, hefur skapað nýjar áskoranir fyrir réttindi einstaklinga og kallað á endurskoðun á því hvernig jafnvægi er náð milli öryggis, skilvirkni og verndar grundvallarréttinda. Lífkennagögn njóta sérstakrar verndar samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR) í Evrópu, en framkvæmd hennar á landsvísu, ákvarðanir eftirlitsstofnana og dómstólaframkvæmd sýna að ábyrgðaraðilar þurfa að geta sýnt fram á bæði lögmæti vinnslunnar, að hún sé nauðsynleg og í samræmi við reglur um meðalhóf. Í ritgerðinni er lögð áhersla á að greina lagalegan ramma um vinnslu lífkennagagna innan Schengen svæðisins, með sérstakri áherslu á Ísland. Fjallað er um helstu áhættur sem tengjast notkun gervigreindar í landamærakerfum, svo sem möguleg mismununaráhrif, skort á gagnsæi, áskoranir við eftirlit og áhrif á rétt einstaklinga til alþjóðlegrar verndar. Einnig er skoðað hvernig nýtt regluverk ESB, þar á meðal Gervigreindarlögin (e.AI Act), leitast við að setja skýr mörk milli hááhættunotkunar og óheimillar framkvæmdar, sérstaklega þegar kemur að sjálfvirkri áhættumati, lífkennagreiningu og forspárkerfum. Ritgerðin byggir á greiningu á evrópskum og íslenskum réttarheimildum, stefnumótandi gögnum, fræðilegri umræðu og viðtölum við sérfræðinga. Markmiðið er að svara rannsóknarspurningunni: Að hvaða marki skapar notkun gervigreindar í Schengen landamærastjórnun spennu milli öryggissamþættingar og kröfu um persónuvernd og vernd grundvallarréttinda innan Evrópusambandsins? Niðurstöður benda til þess að þessi spenna sé raunveruleg og vaxandi. Á sama tíma og Schengen ríki leitast við að efla öryggi með samþættingu stórra upplýsingakerfa og sjálfvirkra greiningartækja, eykst hættan á að réttindi einstaklinga verði skert ef skortur er á gagnsæi, eftirliti og skýrum mörkum um heimila notkun. Sérstaða Íslands sem ytri landamæri Schengen gerir þessar áskoranir enn sýnilegri, þar sem landið þarf að samræma sig ströngum evrópskum stöðlum á sama tíma og tryggja að innleiðing nýrrar tækni sé í samræmi við íslenskan rétt og alþjóðlegar skuldbindingar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sanita Hildarson 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53787
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53787

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sanita Hildarson 1978-. Gervigreind í Schengen-landamærastjórnun: Öryggissamþætting, persónuvernd og kerfislæg spenna innan Evrópusambandsins. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53787