Abstract
dc:description.abstractRitgerðin skoðar stöðu söngleikjalistformsins í íslensku menningarumhverfi og metur hvort það hafi þróast sem sjálfstæður menningarvettvangur. Þrátt fyrir miklar vinsældir skortir formið skýra skilgreiningu og formlega viðurkenningu í löggjöf, stefnumótun og stofnanakerfi. Þessi þversögn, vinsældir án vettvangs, er kjarni rannsóknarinnar. Greiningin byggir á vettvangskenningu Pierre Bourdieu og kenningum Paul DiMaggio um stofnanavæðingu. Þróað er líkan með tveimur ásum. Fyrri ásinn metur stig stofnanavæðingar út frá fjórum þáttum: menntun, faglegu samfélagi, stofnunum og framleiðslu og fjármögnun og opinberri stefnu. Seinni ásinn metur stöðu vettvangsins milli tveggja póla: annars vegar vægi faglegs og fræðilegs umhverfis, hins vegar áhrifum markaðar og annarra ytri mótunaráhrifa; vettvangurinn er staðsettur á þessum ás eftir vægi þessara þátta. Með eigindlegri skjalagreiningu og samanburði við Bretland, Bandaríkin, Þýskaland og Svíþjóð er staða Íslands metin. Niðurstöður sýna að söngleikjaformið býr við veika til miðlungs stofnanavæðingu. Háskólamenntun er nánast engin, faglegt samfélag óskipulagt og formið nýtur engrar sértækrar viðurkenningar í lögum eða stefnum. Fjármögnun er að mestu bundin við verkefnasjóði án langtímastuðnings. Niðurstöður benda jafnframt til þess að vinsældir formsins byggist að verulegu leyti á ytri, markaðsdrifnum þáttum fremur en sjálfstæðum faglegum innviðum. Samanburður sýnir að þar sem söngleikjalist hefur þróast sem sjálfstæður vettvangur byggist sú þróun á sérhæfðri menntun og skipulögðum, faglegum og stofnanalegum innviðum. Ályktunin er sú að söngleikjaformið hafi ekki þróast sem sjálfstæður menningarvettvangur. Frekari þróun krefst markvissrar uppbyggingar menntunar, faglegs samfélags og skýrari stöðu í opinberri stefnu. Þó eru blikur á lofti, ekki síst í orðræðu, um að vettvangurinn hafi nú möguleika á að styrkjast. Lykilorð: söngleikir, menningarvettvangur, stofnanavæðing, menningarstefna, sviðslistir, Ísland, Bourdieu, DiMaggio
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þór Breiðfjörð Kristinsson 1971-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53785
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53785