Back to results

Bifröst University

Samningsstöðugleiki í alþjóðlegum knattspyrnurétti: Greining á 17. gr. RSTP og dómaframkvæmd CAS með hliðsjón af stöðu ólögráða leikmanna

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð fjallar um meginregluna um samningsstöðugleika (e. contractual stability) í alþjóðlegum knattspyrnurétti, með sérstakri áherslu á 17. gr. FIFA Regulations on the Status and Transfer of Players (RSTP) og dómaframkvæmd Court of Arbitration for Sport (CAS). Markmið ritgerðarinnar er að greina hvort núverandi regluverk nái raunverulegu jafnvægi milli hagsmuna leikmanna og félaga, og hvernig það jafnvægi mótast í framkvæmd. Í ritgerðinni er sýnt fram á að samningsstöðugleiki er ekki fastmótuð regla, heldur sveigjanlegt viðmið sem mótast í samspili reglna FIFA og dómaframkvæmdar CAS. Sérstök áhersla er lögð á túlkun hugtaksins just cause og hvernig beiting þess hefur áhrif á möguleika leikmanna til að losna undan samningssamböndum sem eru í reynd íþyngjandi eða óvirk. Jafnframt er fjallað um stöðu ólögráða leikmanna sem sérstakt frávik frá hefðbundinni beitingu reglunnar. Greiningin sýnir að verndarsjónarmið samkvæmt 19. gr. RSTP setja efnisleg mörk á samningsstöðugleika og leiða til þess að beiting 17. gr. verður að taka mið af aldri, samningshæfi og raunverulegri stöðu leikmanns. Í því samhengi er bent á að núverandi regluverk nái ekki að fullu utan um aðstæður þar sem samningssamband barns verður í reynd óvirkt án formlegs samningsrofs. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að þrátt fyrir að kerfið stuðli að fyrirsjáanleika og verndi fjárhagslega hagsmuni félaga, geti beiting þess í framkvæmd skapað ójafnvægi, sérstaklega gagnvart leikmönnum í veikari samningsstöðu. Þá er jafnframt sýnt fram á að dómaframkvæmd CAS gegnir lykilhlutverki við að móta sveigjanlega túlkun reglunnar og tryggja að hún aðlagist síbreytilegum aðstæðum á alþjóðlegum knattspyrnumarkaði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Árni Freyr Sverrisson 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53784
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53784

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Árni Freyr Sverrisson 1988-. Samningsstöðugleiki í alþjóðlegum knattspyrnurétti: Greining á 17. gr. RSTP og dómaframkvæmd CAS með hliðsjón af stöðu ólögráða leikmanna. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53784