Back to results

Bifröst University

Þjónn í eigin lífi

Abstract

dc:description.abstract

Ágrip Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvernig þjónandi forysta birtist sem innra ferli hjá einstaklingum sem hafa farið í gegnum ferlið Finndu þitt Af hverju (e. Find Your Why). Litið er sérstaklega til áhrifa ferlisins á sjálfsþekkingu, mörk, tengsl og framtíðarsýn og hvernig reynslan speglar víddir þriggja þátta líkans Sigrúnar Gunnarsdóttur um þjónandi forystu. Rannsóknin er eigindleg og byggir á sex djúpviðtölum við konur sem tóku þátt í Finndu þitt Af hverju. Gögnin voru greind með þemagreiningu til að varpa ljósi á upplifun, merkingu og umbreytingarferli þátttakenda. Niðurstöður sýna að ferlið virkar sem hvati að dýpri sjálfsþekkingu og meðvitund. Þátttakendur lýstu því að þær lærðu að setja skýr mörk, draga úr meðvirkni og rækta jafnvægi milli ábyrgðar og umhyggju fyrir sjálfum sér og öðrum. Tengsl við fjölskyldu, vini og nærumhverfi reyndust miðlægt afl í umbreytingunni þar sem traust og gagnkvæmur stuðningur urðu grunnur að nýjum skilningi og vexti. Rannsóknin bendir til að þjónandi forysta sé ekki aðeins stjórnunarleg nálgun heldur innri forysta sem mótast af einlægni, mildi og ábyrgð og birtist í daglegu lífi jafnt sem starfi. Með þessu er dregin fram ný vídd þjónandi forystu þar sem sjálfsþekking, tengsl og ábyrgð mynda heildrænt ferli sem styður sjálfbæran vöxt og dýpri merkingu. Niðurstöðurnar samræmast sýn Greenleaf og Sigrúnar Gunnarsdóttur um að þjónandi forysta hefjist innan frá og endurspeglist út á við í heilbrigðum tengslum, jafnvægi og ábyrgð. Lykilorð: þjónandi forysta, innri forysta, sjálfsþekking, mörk og tengsl, þemagreining, Finndu þitt Af hverju

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Þóra Valsdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52160
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52160

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Þóra Valsdóttir 1977-. Þjónn í eigin lífi. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52160