Bifröst University
Að leiða með þjónandi hugarfari: Birtingarmynd þjónandi forystu í efstu deild karla í körfubolta á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractÞjónandi forysta hefur á undanförnum árum vakið aukna athygli innan íþróttafræðanna, þar sem hún er talin geta eflt samkennd, traust og ábyrgð meðal leikmanna. Þrátt fyrir fjölmargar erlendar rannsóknir á þjónandi forystu innan íþrótta hefur lítið verið fjallað um birtingarmynd hennar í íslensku samhengi. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvernig þjónandi forysta birtist í starfi körfuboltaþjálfara í efstu deild karla á Íslandi og hvernig leikmenn skynja forystuhætti þeirra. Rannsóknin byggir á blandaðri rannsóknaraðferð þar sem eigindleg gögn voru fengin með viðtölum við þjálfara og meigindleg gögn með spurningakönnun meðal leikmanna. Eigindleg gögn voru greind með þemagreiningu og meigindleg gögn byggðust á sex víddum OLA líkansins, sem mælir lykilþætti þjónandi forystu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þjónandi forysta birtist skýrt í hegðun og nálgun þjálfara, einkum í víddum sem tengjast virðingu, samskiptum, stuðningi og umhyggju fyrir leikmönnum. Þjálfararnir lögðu áherslu á að byggja upp traust og skapa jákvæða liðsheild, en jafnframt að viðhalda aga og faglegu jafnvægi. Lægri einkunnir komu fram í víddum sem tengjast sameiginlegri forystu og þátttöku leikmanna í ákvarðanatöku. Rannsóknin varpar ljósi á mikilvægi þess að huga að þjónandi forystu sem hugarfari í íslensku íþróttaumhverfi og hvernig hún getur stuðlað að meiri vellíðan, hvatningu og árangri innan liða. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um að efling þjónandi forystu geti aukið gæði leiðtogastarfs í íþróttum og skapað menningu þar sem jafnvægi ríkir milli árangurs og mannlegra samskipta. Lykilorð: Þjónandi hugarfar, OLA líkanið, körfubolti, hugarfar leiðtoga, leikmenn, þjálfarar
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Erla Dögg Grétarsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52157
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52157